Launavísitala í mars 2006 er 285,4 stig og hækkaði um 0,3% frá fyrri mánuði. Síðastliðna tólf mánuði hefur launavísitalan hækkað um 8,6%.
Launavísitala fyrir helstu launþegahópa á fyrsta ársfjórðungi 2006 er 150,8 stig og hækkaði um 4,4% frá fyrri ársfjórðungi. Sambærileg vísitala fyrir opinbera starfsmenn og bankamenn er 153,7 stig og hækkaði um 4,2%. Vísitala fyrir almennan markað er 148,8 stig og hækkaði um 4,5%.
Athygli er vakin á leiðréttingu á ársfjórðungsvísitölu fyrir helstu launþegahópa á fjórða ársfjórðungi 2005. Vegna mistaka var áður birt niðurstaða 144,1 stig en átti að vera 144,4 stig.
Launavísitala sem gildir við útreikning greiðslumarks fasteignaveðlána í maí 2006 er 6243 stig.
Launavísitala 2005-2006 | |||||
Des. 1988 = 100 | Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar | ||||
Vísitala launa- mánaðar | Breyting frá fyrra mánuði, % | ||||
Síðustu 3 mánuði, % | Síðustu 6 mánuði, % | Síðustu 12 mánuði, % | |||
2005 | |||||
Mars | 262,9 | 0,4 | 12,1 | 8,4 | 6,5 |
Apríl | 264,2 | 0,5 | 4,8 | 8,9 | 6,7 |
Maí | 265,9 | 0,6 | 6,3 | 9,8 | 6,6 |
Júní | 267,0 | 0,4 | 6,4 | 9,2 | 6,3 |
Júlí | 268,0 | 0,4 | 5,9 | 5,4 | 6,6 |
Ágúst | 268,9 | 0,3 | 4,6 | 5,4 | 6,7 |
September | 269,8 | 0,3 | 4,3 | 5,3 | 6,9 |
Október | 270,6 | 0,3 | 3,9 | 4,9 | 6,9 |
Nóvember | 272,3 | 0,6 | 5,2 | 4,9 | 7,3 |
Desember | 273,9 | 0,6 | 6,2 | 5,2 | 7,2 |
Meðaltal | 267,2 | . | . | . | 6,8 |
2006 | |||||
Janúar | 282,8 | 3,3 | 19,3 | 11,3 | 8,3 |
Febrúar | 284,4 | 0,6 | 19,0 | 11,9 | 8,6 |
Mars | 285,4 | 0,3 | 17,9 | 11,9 | 8,6 |
Skýring: Launavísitala er reiknuð og birt skv. lögum nr. 89/1989. Vísitalan miðast við meðallaun í hverjum mánuði og er reiknuð og birt um miðjan næsta mánuð. |