FRÉTT LAUN OG TEKJUR 25. APRÍL 2014

Launavísitala í mars 2014 er 475,3 stig og hækkaði um 1,0% frá fyrri mánuði. Síðastliðna tólf mánuði hefur launavísitalan hækkað um 4,4%.

Launavísitala 2013-2014
Desember 1988=100   Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar
Vísitala launa- mánaðar Breyting frá fyrri mánuði, %
Síðustu 3 mánuði, % Síðustu 6 mánuði, % Síðustu 12 mánuði, %
 
2013
Mars 455,3 1,3 17,1 8,9 5,5
Apríl 456,4 0,2 16,6 9,2 5,8
Maí 456,5 0,0 6,5 8,8 5,5
Júní 457,8 0,3 2,2 9,4 5,7
Júlí 457,5 -0,1 1,0 8,5 5,5
Ágúst 458,6 0,2 1,9 4,1 5,7
September 462,0 0,7 3,7 3,0 5,9
Október 463,1 0,2 5,0 3,0 6,0
Nóvember 464,2 0,2 5,0 3,4 6,1
Desember 463,8 -0,1 1,6 2,6 6,0
2014
Janúar 468,5 1,0 4,7 4,9 6,7
Febrúar 470,5 0,4 5,5 5,3 4,7
Mars 475,3 1,0 10,3 5,8 4,4
Skýring: Launavísitala er reiknuð og birt skv. lögum nr. 89/1989. Vísitalan miðast við regluleg laun í hverjum mánuði og er reiknuð og birt um miðjan næsta mánuð.

Kaupmáttur launa hækkaði um 0,8% frá fyrri mánuði
Vísitala kaupmáttar launa í mars 2014 er 116,2 stig og hækkaði um 0,8% frá fyrri mánuði. Síðustu tólf mánuði hefur vísitala kaupmáttar launa hækkað um 2,2%.

 

Kjarasamningar á tímabilinu
Í vísitölu marsmánaðar gætir áhrifa kjarasamninga milli Samtaka atvinnulífsins og aðildarfélaga Alþýðusambands Íslands sem áður höfðu fellt almennan kjarasamning sem undirritaður var 21. desember 2013. Í þeim kjarasamningum sem samþykktir voru í kjölfarið, var kveðið á um almenna hækkun launataxta um 2,8% þann 1. febrúar 2014 en þó að lágmarki kr. 8.000 á mánuði miðað við fullt starf. Einnig var kveðið á um sérstaka hækkun lægstu kauptaxta. Kjarasamningshækkunin kom ekki til framkvæmda fyrr en í mars og koma áhrif hennar því ekki fram fyrr en í vísitölu marsmánaðar.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.