Launavísitala í október 2014 er 493,8 stig og hækkaði um 0,6% frá fyrri mánuði. Síðastliðna tólf mánuði hefur launavísitalan hækkað um 6,6%.
Launavísitala 2013-2014 | |||||
Desember 1988=100 | Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar | ||||
Vísitala launa- mánaðar | Breyting frá fyrri mánuði, % | ||||
Síðustu 3 mánuði, % | Síðustu 6 mánuði, % | Síðustu 12 mánuði, % | |||
2013 | |||||
Október | 463,1 | 0,2 | 5,0 | 3,0 | 6,0 |
Nóvember | 464,2 | 0,2 | 5,0 | 3,4 | 6,1 |
Desember | 463,8 | -0,1 | 1,6 | 2,6 | 6,0 |
2014 | |||||
Janúar | 468,5 | 1,0 | 4,7 | 4,9 | 6,7 |
Febrúar | 470,5 | 0,4 | 5,5 | 5,3 | 4,7 |
Mars | 475,3 | 1,0 | 10,3 | 5,8 | 4,4 |
Apríl | 478,4 | 0,7 | 8,7 | 6,7 | 4,8 |
Maí | 480,4 | 0,4 | 8,7 | 7,1 | 5,2 |
Júní | 482,7 | 0,5 | 6,4 | 8,3 | 5,4 |
Júlí | 484,7 | 0,4 | 5,4 | 7,0 | 5,9 |
Ágúst | 487,4 | 0,6 | 6,0 | 7,3 | 6,3 |
September | 490,6 | 0,7 | 6,7 | 6,5 | 6,2 |
Október | 493,8 | 0,6 | 7,7 | 6,5 | 6,6 |
Skýring: Launavísitala er reiknuð og birt skv. lögum nr. 89/1989. Vísitalan miðast við regluleg laun í hverjum mánuði og er reiknuð og birt um miðjan næsta mánuð. |
Kaupmáttur launa hækkaði um 0,5% frá fyrri mánuði
Vísitala kaupmáttar launa í október 2014 er 119,7 stig og hækkaði um 0,5% frá fyrri mánuði. Síðustu tólf mánuði hefur vísitala kaupmáttar launa hækkað um 4,6%.
Um launa- og kaupmáttarvísitölu
Launavísitala er verðvísitala sem byggir á gögnum úr launarannsókn Hagstofu Íslands og sýnir breytingar á verði vinnustundar fyrir fasta samsetningu vinnutíma. Vísitalan tekur mið af breytingum reglulegra launa sem greidd eru fyrir umsaminn vinnutíma hvort sem um er að ræða dagvinnu eða vaktavinnu. Tekið er tillit til hvers konar álags-, bónus- og kostnaðargreiðslna sem gerðar eru upp á hverju útborgunartímabili. Hvorki er tekið tillit til tilfallandi yfirvinnu né óreglulegra greiðslna enda er í lögum um launavísitölu ætlast til að breytingar á vinnutíma og samsetningu hans hafi ekki áhrif á vísitöluna.
Vísitala kaupmáttar launa sýnir breytingu launa í samhengi við breytingar á neysluverði. Almennt eykst kaupmáttur launa þegar laun hækka umfram verðlag en minnkar þegar verðbólga er meiri en launahækkanir. Hafa þarf í huga að kaupmáttur launa er annar en kaupmáttur ráðstöfunartekna. Hagstofan birtir einnig upplýsingar um kaupmátt ráðstöfunartekna en þar er tekið tillit til heildarlauna, annarra tekna og tilfærslna, svo sem barna- og vaxtabóta, að frádregnum sköttum. Kaupmáttur ráðstöfunartekna er gefinn úr árlega og má finna upplýsingar um hann hér.