FRÉTT LAUN OG TEKJUR 23. SEPTEMBER 2008

Launavísitala í ágúst 2008 er 350,4 stig og hækkaði um 0,5% frá fyrri mánuði.

Í hækkun launavísitölunnar gætir áhrifa samkomulags Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og fjármálaráðherra f.h. ríkisjóðs, um breytingar og framlengingu á kjarasamningi aðila, sem undirritað var þann 9. júlí síðastliðinn. Samkvæmt samkomulaginu hækkuðu dagvinnulaun reyndra hjúkrunarfræðinga um rúm 14% en laun nýútskrifaðra um rúm 15%.

Þá gætir einnig í hækkun vísitölunnar áhrifa samnings Kennarasambands Íslands f.h. Félags grunnskólakennara og launanefndar sveitarfélaganna, um framlengingu og breytingar á kjarasamningi aðila, sem undirritaður var þann 28. apríl síðastliðinn. Samkvæmt samningnum hækkuðu laun um 25 þúsund krónur þann 1. júlí síðastliðinn og um 9 þúsund krónur þann 1. ágúst. Einnig var svokölluðum aldursþrepum fækkað um eitt í nýrri launatöflu. Samkvæmt samningnum munu laun félagsmanna hækka um einn launaflokk, eða um það bil 2,5%,  þann 1. október næstkomandi. 

Síðastliðna tólf mánuði hefur launavísitalan hækkað um 9,1%.

Launavísitala 2007-2008
Janúar 1989=100   Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar
Vísitala launa- mánaðar Breyting frá fyrra mánuði, %
Síðustu 3 mánuði, % Síðustu 6 mánuði, % Síðustu 12 mánuði, %
 
2007
Ágúst 321,1 0,4 5,4 5,7 8,0
September 323,1 0,6 5,2 6,4 8,1
Október 324,6 0,5 6,1 6,5 8,1
Nóvember 325,9 0,4 6,1 5,8 8,3
Desember 326,6 0,2 4,4 4,8 8,6
Meðaltal 319,1 . . . 9,0
2008
Janúar 330,9 1,3 8,0 7,1 6,2
Febrúar 333,5 0,8 9,7 7,9 6,8
Mars 337,6 1,2 14,2 9,2 7,8
Apríl 340,5 0,9 12,1 10,0 8,2
Maí 342,0 0,4 10,6 10,1 7,9
Júní 346,2 1,2 10,6 12,4 8,5
Júlí 348,8 0,7 10,1 11,1 9,1
Ágúst 350,4 0,5 10,2 10,4 9,1
Skýring: Launavísitala er reiknuð og birt skv. lögum nr. 89/1989. Vísitalan miðast við meðallaun í hverjum mánuði og er reiknuð og birt um miðjan næsta mánuð.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.