Launavísitala í apríl 2024 hækkaði um 0,5% frá fyrri mánuði. Á sama tíma hækkaði vísitala grunnlauna um 0,1%. Síðastliðna tólf mánuði hefur launavísitalan hækkað um 7,1% og vísitala grunnlauna um 6,9%.
Hækkanir launavísitölu og vísitölu grunnlauna eru að mestu leyti vegna kjarasamninga sem gerðir voru í febrúar síðastliðinn á milli Samtaka atvinnulífsins og helstu samtaka launafólks á almennun vinnumarkaði.