FRÉTT LAUN OG TEKJUR 23. FEBRÚAR 2009


Laun hækkuðu um 0,6% í janúar

Launavísitala í janúar 2009 er 355,7 stig og hækkaði um 0,6% frá fyrri mánuði. Síðastliðna tólf mánuði hefur launavísitalan hækkað um 7,5%.

Kaupmáttur launa hefur dregist saman um 9,4% síðustu 12 mánuði
Vísitala kaupmáttar launa í janúar er 109,0 stig og er óbreytt frá fyrri mánuði. Síðustu tólf mánuði hefur vísitala kaupmáttar launa lækkað um 9,4%.

 


Kjarasamningar á tímabilinu
Samkvæmt kjarasamningi Félags grunnskólakennara og Launanefndar sveitarfélaganna hækkuðu laun félagsmanna um 2,5% þann 1. janúar 2009.

Í breytingum launavísitölu í janúar gætir einnig áhrifa annarra kjarasamninga á sveitarstjórnarstiginu sem gerðir voru undir lok síðasta árs. Þá gætir einnig áhrifa kjarasamnings Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja og Samtaka atvinnulífsins sem undirritaður var þann 5. desember sl.

Launavísitala 2008-2009
Desember 1988=100   Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar
Vísitala launa- mánaðar Breyting frá fyrra mánuði, %
Síðustu 3 mánuði, % Síðustu 6 mánuði, % Síðustu 12 mánuði, %
 
2008
Janúar 330,9 1,3 8,0 7,1 6,2
Febrúar 333,5 0,8 9,7 7,9 6,8
Mars 337,6 1,2 14,2 9,2 7,8
Apríl 340,5 0,9 12,1 10,0 8,2
Maí 342,0 0,4 10,6 10,1 7,9
Júní 346,2 1,2 10,6 12,4 8,5
Júlí 348,8 0,7 10,1 11,1 9,1
Ágúst 350,4 0,5 10,2 10,4 9,1
September 352,2 0,5 7,1 8,8 9,0
Október 353,3 0,3 5,3 7,7 8,8
Nóvember 351,3 -0,6 1,0 5,5 7,8
Desember 353,6 0,7 1,6 4,3 8,3
Meðaltal
2009
Janúar 355,7 0,6 2,7 4,0 7,5
Skýring: Launavísitala er reiknuð og birt skv. lögum nr. 89/1989. Vísitalan miðast við meðallaun í hverjum mánuði og er reiknuð og birt um miðjan næsta mánuð.

Talnefni


Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.