FRÉTT LAUN OG TEKJUR 22. FEBRÚAR 2011


Launavísitala nær óbreytt frá fyrri mánuði
Launavísitala í janúar 2011 er 383,2 stig og hækkaði um 0,02% frá fyrri mánuði. Síðastliðna tólf mánuði hefur launavísitalan hækkað um 4,4%.

Launavísitala 2010–2011
Desember 1988=100   Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar
Vísitala launa- mánaðar Breyting frá fyrra mánuði, %
Síðustu 3 mánuði, % Síðustu 6 mánuði, % Síðustu 12 mánuði, %
 
2010
Janúar 366,9 0,1 7,8 5,0 3,1
Febrúar 368,6 0,5 3,5 6,0 3,6
Mars 369,0 0,1 2,8 5,6 3,6
Apríl 369,5 0,1 2,9 5,3 4,0
Maí 370,1 0,2 1,6 2,6 4,0
Júní 378,3 2,2 10,5 6,5 6,1
Júlí 379,5 0,3 11,3 7,0 6,0
Ágúst 379,5 0,0 10,6 6,0 6,0
September 380,7 0,3 2,6 6,4 6,0
Október 381,8 0,3 2,4 6,8 6,0
Nóvember 382,4 0,2 3,1 6,8 4,7
Desember 383,1 0,2 2,5 2,6 4,5
2011
Janúar 383,2 0,0 1,5 2,0 4,4
Skýring: Launavísitala er reiknuð og birt skv. lögum nr. 89/1989. Vísitalan miðast við regluleg laun í hverjum mánuði og er reiknuð og birt um miðjan næsta mánuð.

Kaupmáttur launa hækkaði um 0,9% frá fyrri mánuði
Vísitala kaupmáttar launa í janúar 2011 er 108,2 stig og hækkaði um 0,9% frá fyrri mánuði. Síðustu tólf mánuði hefur vísitala kaupmáttar launa hækkað um 2,5%.


Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.