Launavísitala í júlí 2017 er 623,9 stig og hækkaði um 0,02% frá fyrri mánuði. Síðastliðna tólf mánuði hefur launavísitalan hækkað um 7,2%.
Launavísitala 2016-2017 | |||||
Desember 1988=100 | Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar | ||||
Vísitala | Breyting frá fyrri mánuði, % | ||||
síðustu 3 mánuði, % | síðustu 6 mánuði, % | síðustu 12 mánuði, % | |||
2016 | |||||
Júlí | 581,9 | 0,1 | 8,3 | 14,0 | 11,3 |
Ágúst | 583,4 | 0,3 | 7,4 | 7,0 | 11,2 |
September | 586,7 | 0,6 | 3,6 | 6,4 | 10,5 |
Október | 588,3 | 0,3 | 4,5 | 6,4 | 10,4 |
Nóvember | 589,9 | 0,3 | 4,5 | 5,9 | 9,7 |
Desember | 592,2 | 0,4 | 3,8 | 3,7 | 9,1 |
2017 | |||||
Janúar | 592,4 | 0,1 | 2,8 | 3,6 | 8,7 |
Febrúar | 595,1 | 0,4 | 3,6 | 4,1 | 5,5 |
Mars | 597,3 | 0,4 | 3,5 | 3,6 | 5,0 |
Apríl | 598,4 | 0,2 | 4,1 | 3,5 | 4,9 |
Maí | 617,8 | 3,2 | 16,2 | 9,7 | 7,8 |
Júní | 623,8 | 1,0 | 19,0 | 11,0 | 7,3 |
Júlí | 623,9 | 0,0 | 18,2 | 10,9 | 7,2 |
Skýring: Launavísitala er reiknuð og birt skv. lögum nr. 89/1989. Vísitalan miðast við regluleg laun í hverjum mánuði og er reiknuð og birt um miðjan næsta mánuð. |
Kaupmáttur launa stóð nánast í stað á milli mánaða
Kaupmáttur launa í júlí 2017 er 144,5 stig og hækkaði um 0,04% frá fyrri mánuði. Síðustu tólf mánuði hefur vísitala kaupmáttar launa hækkað um 5,3%.
Um launa- og kaupmáttarvísitölu
Launavísitala er verðvísitala sem byggir á gögnum úr launarannsókn Hagstofu Íslands og sýnir breytingar á verði vinnustundar fyrir fasta samsetningu vinnutíma. Vísitalan tekur mið af breytingum reglulegra launa sem greidd eru fyrir umsaminn vinnutíma hvort sem um er að ræða dagvinnu eða vaktavinnu. Tekið er tillit til hvers konar álags-, bónus- og kostnaðargreiðslna sem gerðar eru upp á hverju útborgunartímabili. Hvorki er tekið tillit til tilfallandi yfirvinnu né óreglulegra greiðslna enda er í lögum um launavísitölu ætlast til að breytingar á vinnutíma og samsetningu hans hafi ekki áhrif á vísitöluna.
Vísitala kaupmáttar launa byggir á launavísitölu og vísitölu neysluverðs. Almennt eykst kaupmáttur launa þegar laun hækka umfram verðlag en minnkar þegar verðbólga er meiri en launahækkanir. Hafa þarf í huga að kaupmáttur launa er annar en kaupmáttur ráðstöfunartekna. Hagstofan birtir einnig upplýsingar um kaupmátt ráðstöfunartekna þar sem tekið er tillit til heildarlauna, annarra tekna og tilfærslna, svo sem barna- og vaxtabóta, að frádregnum sköttum.