Launavísitala í júní 2008 er 346,2 stig og hækkaði um 1,2% frá fyrri mánuði.
Í hækkun launavísitölunnar gætir áhrifa samkomulags aðildarfélaga Bandalags starfsmanna ríkis og bæja (BSRB) við samninganefnd ríkisins um breytingar og framlengingu á fyrri kjarasamningum aðila. Samkvæmt samkomulaginu var samið um 20.300 króna launahækkun frá 1. maí 2008.
Í vísitölunni gætir einnig áhrifa nýgerðs kjarasamnings Félags grunnskólakennara og launanefndar sveitarfélaga sem kvað meðal annars á um 25.000 króna hækkun þann 1. júní 2008.
Síðastliðna tólf mánuði hefur launavísitalan hækkað um 8,5%.
| Launavísitala 2007-2008 | |||||
| Janúar 1989=100 | Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar | ||||
| Vísitala launa- mánaðar | Breyting frá fyrra mánuði, % | ||||
| Síðustu 3 mánuði, % | Síðustu 6 mánuði, % | Síðustu 12 mánuði, % | |||
| 2007 | |||||
| Júní | 319,0 | 0,6 | 7,6 | 12,5 | 9,8 | 
| Júlí | 319,8 | 0,3 | 6,8 | 5,4 | 8,3 | 
| Ágúst | 321,1 | 0,4 | 5,4 | 5,7 | 8,0 | 
| September | 323,1 | 0,6 | 5,2 | 6,4 | 8,1 | 
| Október | 324,6 | 0,5 | 6,1 | 6,5 | 8,1 | 
| Nóvember | 325,9 | 0,4 | 6,1 | 5,8 | 8,3 | 
| Desember | 326,6 | 0,2 | 4,4 | 4,8 | 8,6 | 
| Meðaltal | 319,1 | . | . | . | 9,0 | 
| 2008 | |||||
| Janúar | 330,9 | 1,3 | 8,0 | 7,1 | 6,2 | 
| Febrúar | 333,5 | 0,8 | 9,7 | 7,9 | 6,8 | 
| Mars | 337,6 | 1,2 | 14,2 | 9,2 | 7,8 | 
| Apríl | 340,5 | 0,9 | 12,1 | 10,0 | 8,2 | 
| Maí | 342,0 | 0,4 | 10,6 | 10,1 | 7,9 | 
| Júní | 346,2 | 1,2 | 10,6 | 12,4 | 8,5 | 
| Skýring: Launavísitala er reiknuð og birt skv. lögum nr. 89/1989. Vísitalan miðast við meðallaun í hverjum mánuði og er reiknuð og birt um miðjan næsta mánuð. | |||||
Talnaefni