Launavísitala hækkaði um 2,2% frá fyrri mánuði
Launavísitala í júní 2010 er 378,3 stig og hækkaði um 2,2% frá fyrri mánuði. Síðastliðna tólf mánuði hefur launavísitalan hækkað um 6,1%.
Launavísitala 2009–2010 | |||||
Desember 1988=100 | Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar | ||||
Vísitala launa- mánaðar | Breyting frá fyrra mánuði, % | ||||
Síðustu 3 mánuði, % | Síðustu 6 mánuði, % | Síðustu 12 mánuði, % | |||
2009 | |||||
Júní | 356,7 | 0,2 | 0,7 | 1,8 | 3,0 |
Júlí | 358,0 | 0,4 | 3,0 | 1,3 | 2,6 |
Ágúst | 358,1 | 0,0 | 2,4 | 1,4 | 2,2 |
September | 359,0 | 0,3 | 2,6 | 1,6 | 1,9 |
Október | 360,1 | 0,3 | 2,4 | 2,7 | 1,9 |
Nóvember | 365,4 | 1,5 | 8,4 | 5,4 | 4,0 |
Desember | 366,5 | 0,3 | 8,6 | 5,6 | 3,6 |
Meðaltal | 358,6 | . | . | . | 3,9 |
2010 | |||||
Janúar | 366,9 | 0,1 | 7,8 | 5,0 | 3,1 |
Febrúar | 368,6 | 0,5 | 3,5 | 6,0 | 3,6 |
Mars | 369,0 | 0,1 | 2,8 | 5,6 | 3,6 |
Apríl | 369,5 | 0,1 | 2,9 | 5,3 | 4,0 |
Maí | 370,1 | 0,2 | 1,6 | 2,6 | 4,0 |
Júní | 378,3 | 2,2 | 10,5 | 6,5 | 6,1 |
Skýring: Launavísitala er reiknuð og birt skv. lögum nr. 89/1989. Vísitalan miðast við meðallaun í hverjum mánuði og er reiknuð og birt um miðjan næsta mánuð. |
Kaupmáttur launa jókst um 2,6% frá fyrri mánuði
Vísitala kaupmáttar launa í júní 2010 er 106,6 stig og hækkaði um 2,6% frá fyrri mánuði. Síðustu tólf mánuði hefur vísitala kaupmáttar launa hækkað um 0,3%.
Kjarasamningar á tímabilinu
Samkvæmt kjarasamningum á milli aðildarfélaga Alþýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins og samkomulags um breytingar þeirra og framlengingu, sem undirritað var 25. júní 2009, hækkuðu launataxtar um kr. 6.500 eða að lágmarki um 2,5% frá 1. júní sl.
Samkvæmt kjarasamningi Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja og Samtaka atvinnulífsins fyrir hönd banka og sparisjóða, hækkuðu laun félagsmanna um kr. 14.000 þann 1. júní sl. eða að lágmarki um 2,5%.
Samkvæmt samkomulagi um framlengingu og breytingar á kjarasamningum sem Launanefnd sveitarfélaganna gerði við 33 stéttarfélög innan Bandalags starfsmanna ríkis og bæja og Alþýðusamband Ísland þann 8. júlí 2009, hækkuðu lægstu virku launaflokkar um kr. 6.500 þann 1. júní sl. Sambærilegt samkomulag var gert á milli Fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs og hluta af aðildarfélögum BSRB og við aðildarfélög ASÍ.
Talnaefni