FRÉTT LAUN OG TEKJUR 23. JÚNÍ 2011

Vinsamlega athugið að þessari fréttatilkynningu var breytt 24. júní 2011 9:00 frá upprunalegri útgáfu. 

Launavísitala hækkaði um 1,1% frá fyrri mánuði
Launavísitala í maí 2011 er 389,9 stig og hækkaði um 1,1% frá fyrri mánuði. Síðastliðna tólf mánuði hefur launavísitalan hækkað um 5,3%.

Launavísitala 2010–2011
Desember 1988=100   Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar
Vísitala launa- mánaðar Breyting frá fyrra mánuði, %
Síðustu 3 mánuði, % Síðustu 6 mánuði, % Síðustu 12 mánuði, %
 
2010
Maí 370,1 0,2 1,6 2,6 4,0
Júní 378,3 2,2 10,5 6,5 6,1
Júlí 379,5 0,3 11,3 7,0 6,0
Ágúst 379,5 0,0 10,6 6,0 6,0
September 380,7 0,3 2,6 6,4 6,0
Október 381,8 0,3 2,4 6,8 6,0
Nóvember 382,4 0,2 3,1 6,8 4,7
Desember 383,1 0,2 2,5 2,6 4,5
2011
Janúar 383,2 0,0 1,5 2,0 4,4
Febrúar 383,9 0,2 1,6 2,3 4,2
Mars 385,2 0,3 2,2 2,4 4,4
Apríl 385,6 0,1 2,5 2,0 4,4
Maí 389,9 1,1 6,4 4,0 5,3
Skýring: Launavísitala er reiknuð og birt skv. lögum nr. 89/1989. Vísitalan miðast við regluleg laun í hverjum mánuði og er reiknuð og birt um miðjan næsta mánuð.

Kaupmáttur launa hækkaði um 0,2% frá fyrri mánuði
Vísitala kaupmáttar launa í maí 2011 er 105,9 stig og hækkaði um 0,2% frá fyrri mánuði. Síðustu tólf mánuði hefur vísitala kaupmáttar launa hækkað um 1,9%.

 


Kjarasamningar á tímabilinu
Í kjarasamningum á milli aðildarfélaga Alþýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins sem undirritaðir voru 5.maí 2011 var kveðið á um 50.000 króna eingreiðslu sem kom til útborgunar við samþykkt kjarasamninga. Áhrifa þessarar eingreiðslu gætir í launavísitölunni.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.