FRÉTT LAUN OG TEKJUR 22. APRÍL 2008

Launavísitala í mars 2008 er 337,6 stig og hækkaði um 1,2% frá fyrri mánuði.

Áhrifa nýgerðra kjarasamninga landssambanda og stærstu aðildarfélaga Alþýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins gætir í hækkun launavísitölunnar. Samkvæmt samningunum sem undirritaðir voru þann 17. febrúar síðastliðinn áttu launataxtar að hækka um 18.000 krónur frá 1. febrúar 2008, auk samkomulags um sérstaka launaþróunartryggingu sem felur í sér 5,5% lágmarkshækkun launa frá janúar 2007 til gildistöku nýrra samninga. Þar sem samningarnir voru ekki endanlega samþykktir fyrr en 12. mars síðastliðinn þá má gera ráð fyrir að þeir komi ekki að fullu til framkvæmda fyrr en í apríl.

Í vísitölunni gætir einnig áhrifa endurskoðunarákvæða samninga Kennarasambands Íslands (fyrir hönd Félags grunnskólakennara og Skólastjórafélags Íslands) og launanefndar sveitarfélaganna frá 8. mars 2007, sem meðal annars kvað á um hækkun allra starfsheita um einn launaflokk frá 1. mars 2008.

Síðastliðna tólf mánuði hefur launavísitalan hækkað um 7,8%.

Launavísitala 2007-2008
Jan 1989 = 100   Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar
Vísitala launa- mánaðar Breyting frá fyrra mánuði, %
Síðustu 3 mánuði, % Síðustu 6 mánuði, % Síðustu 12 mánuði, %
 
2007
Mars 313,2 0,3 17,5 9,8 9,7
Apríl 314,6 0,4 4,0 9,7 9,8
Maí 316,9 0,7 6,0 10,8 9,6
Júní 319,0 0,6 7,6 12,5 9,8
Júlí 319,8 0,3 6,8 5,4 8,3
Ágúst 321,1 0,4 5,4 5,7 8,0
September 323,1 0,6 5,2 6,4 8,1
Október 324,6 0,5 6,1 6,5 8,1
Nóvember 325,9 0,4 6,1 5,8 8,3
Desember 326,6 0,2 4,4 4,8 8,6
Meðaltal 319,1 . . . 9,0
2008
Janúar 330,9 1,3 8,0 7,1 6,2
Febrúar 333,5 0,8 9,7 7,9 6,8
Mars 337,6 1,2 14,2 9,2 7,8
Skýring: Launavísitala er reiknuð og birt skv. lögum nr. 89/1989. Vísitalan miðast við meðallaun í hverjum mánuði og er reiknuð og birt um miðjan næsta mánuð.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.