Launavísitala hækkaði um 0,1% frá fyrri mánuði
Launavísitala í mars 2009 er 356,1 stig og hækkaði um 0,1% frá fyrri mánuði. Síðastliðna tólf mánuði hefur launavísitalan hækkað um 5,5%.
Kaupmáttur launa jókst um 0,7% frá fyrri mánuði
Vísitala kaupmáttar launa í mars er 109,2 stig og hækkaði um 0,7% frá fyrri mánuði. Síðustu tólf mánuði hefur vísitala kaupmáttar launa lækkað um 8,4%.
Kjarasamningar á tímabilinu
Samkvæmt kjarasamningum aðildarfélaga Alþýðusambands Íslands og Samtaka Atvinnulífsins sem undirritaður var þann 17. febrúar 2008 átti 13.500 króna hækkun launataxta að koma til framkvæmda þann 1. mars 2009. Þrátt fyrir að fyrir lægi samkomulag á milli aðila vinnumarkaðarins um frestun launahækkana komu þær til framkvæmda hjá hluta þeirra fyrirtækja sem aðild eiga að Samtökum atvinnulífsins.
Samkvæmt ákvörðun Kjararáðs frá 23. febrúar sl. lækkuðu laun embættismanna sem undir kjararáð heyra, annarra en dómara og skrifstofustjóra í Stjórnarráði Íslands um 5-15% frá 1. mars 2009. Áður hafði Kjararáð ákvarðað að laun alþingismanna skyldu lækka um 7,5% og laun ráðherra um 14-15%.
Launavísitala 2008-2009 | |||||
Desember 1988=100 | Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar | ||||
Vísitala launa- mánaðar | Breyting frá fyrra mánuði, % | ||||
Síðustu 3 mánuði, % | Síðustu 6 mánuði, % | Síðustu 12 mánuði, % | |||
2008 | |||||
Mars | 337,6 | 1,2 | 14,2 | 9,2 | 7,8 |
Apríl | 340,5 | 0,9 | 12,1 | 10,0 | 8,2 |
Maí | 342,0 | 0,4 | 10,6 | 10,1 | 7,9 |
Júní | 346,2 | 1,2 | 10,6 | 12,4 | 8,5 |
Júlí | 348,8 | 0,7 | 10,1 | 11,1 | 9,1 |
Ágúst | 350,4 | 0,5 | 10,2 | 10,4 | 9,1 |
September | 352,2 | 0,5 | 7,1 | 8,8 | 9,0 |
Október | 353,3 | 0,3 | 5,3 | 7,7 | 8,8 |
Nóvember | 351,3 | -0,6 | 1,0 | 5,5 | 7,8 |
Desember | 353,6 | 0,7 | 1,6 | 4,3 | 8,3 |
Meðaltal | 345,0 | . | . | . | 8,1 |
2009 | |||||
Janúar | 355,7 | 0,6 | 2,7 | 4,0 | 7,5 |
Febrúar | 355,7 | 0,0 | 5,1 | 3,0 | 6,7 |
Mars | 356,1 | 0,1 | 2,9 | 2,2 | 5,5 |
Skýring: Launavísitala er reiknuð og birt skv. lögum nr. 89/1989. Vísitalan miðast við meðallaun í hverjum mánuði og er reiknuð og birt um miðjan næsta mánuð. |
Talnaefni