FRÉTT LAUN OG TEKJUR 20. APRÍL 2016

Launavísitala í mars 2016 er 568,8 stig og hækkaði um 0,9% frá fyrri mánuði. Síðastliðna tólf mánuði hefur launavísitalan hækkað um 13,3%.

Launavísitala 2015-2016
Desember 1988=100   Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar
  Vísitala Breyting frá fyrri mánuði, %
  Síðustu 3 mánuði, % Síðustu 6 mánuði, % Síðustu 12 mánuði, %
 
2015          
Mars 502,1 0,3 6,2 4,7 5,6
Apríl 503,2 0,2 4,2 3,8 5,2
Maí 505,7 0,5 4,0 4,5 5,3
Júní 517,1 2,3 12,5 9,3 7,1
Júlí 523,0 1,1 16,7 10,2 7,9
Ágúst 524,7 0,3 15,9 9,8 7,7
September 531,0 1,2 11,2 11,8 8,2
Október 532,9 0,3 7,8 12,2 7,9
Nóvember 537,6 0,9 10,2 13,0 8,7
Desember 542,7 0,9 9,1 10,1 9,7
2016          
Janúar 545,0 0,4 9,4 8,6 9,4
Febrúar 564,0 3,5 21,1 15,5 12,6
Mars 568,8 0,9 20,7 14,7 13,3
Skýring: Launavísitala er reiknuð og birt skv. lögum nr. 89/1989. Vísitalan miðast við regluleg laun í hverjum mánuði og er reiknuð og birt um miðjan næsta mánuð.

Kaupmáttur launa hækkaði um 0,5% frá fyrri mánuði
Vísitala kaupmáttar launa í mars 2016 er 134,8 stig og hækkaði um 0,5% frá fyrri mánuði. Síðustu tólf mánuði hefur vísitala kaupmáttar launa hækkað um 11,6%.

Helstu kjarasamningar
Í vísitölunni gætir enn áhrifa nýrra kjarasamninga á vinnumarkaði, svo sem aðildarfélaga Alþýðusambands Íslands við Samtök atvinnulífsins sem skrifað var undir hinn 21. janúar 2016.

Um launa- og kaupmáttarvísitölu
Launavísitala er verðvísitala sem byggist á gögnum úr launarannsókn Hagstofu Íslands og sýnir breytingar á verði vinnustundar fyrir fasta samsetningu vinnutíma. Vísitalan tekur mið af breytingum reglulegra launa sem greidd eru fyrir umsaminn vinnutíma hvort sem um er að ræða dagvinnu eða vaktavinnu. Tekið er tillit til hvers konar álags-, bónus- og kostnaðargreiðslna sem gerðar eru upp á hverju útborgunartímabili. Hvorki er tekið tillit til tilfallandi yfirvinnu né óreglulegra greiðslna enda er í lögum um launavísitölu ætlast til að breytingar á vinnutíma og samsetningu hans hafi ekki áhrif á vísitöluna.

Vísitala kaupmáttar launa byggist á launavísitölu og vísitölu neysluverðs. Almennt eykst kaupmáttur launa þegar laun hækka umfram verðlag en minnkar þegar verðbólga er meiri en launahækkanir. Hafa þarf í huga að kaupmáttur launa er annar en kaupmáttur ráðstöfunartekna. Hagstofan birtir einnig upplýsingar um kaupmátt ráðstöfunartekna þar sem tekið er tillit til heildarlauna, annarra tekna og tilfærslna, svo sem barna- og vaxtabóta, að frádregnum sköttum.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1250 , netfang laun@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.