Launavísitala í mars 2024 hækkaði um 2,4% frá fyrri mánuði. Á sama tíma hækkaði vísitala grunnlauna um 2,6%. Síðastliðna tólf mánuði hefur launavísitalan hækkað um 8,3% og vísitala grunnlauna um 8,1%.
Hækkanir launavísitölu og vísitölu grunnlauna eru að mestu leyti vegna kjarasamninga sem gerðir voru í febrúar sl. á milli Samtaka atvinnulífsins og helstu samtaka launafólks á almennun vinnumarkaði.