Launavísitala hækkaði um 0,8% frá fyrri mánuði
Launavísitala í september 2011 er 412,8 stig og hækkaði um 0,8% frá fyrri mánuði. Síðastliðna tólf mánuði hefur launavísitalan hækkað um 8,4%.
Launavísitala 2010–2011 | |||||
Desember 1988=100 | Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar | ||||
Vísitala launa- mánaðar | Breyting frá fyrra mánuði, % | ||||
Síðustu 3 mánuði, % | Síðustu 6 mánuði, % | Síðustu 12 mánuði, % | |||
2010 | |||||
September | 380,7 | 0,3 | 2,6 | 6,4 | 6,0 |
Október | 381,8 | 0,3 | 2,4 | 6,8 | 6,0 |
Nóvember | 382,4 | 0,2 | 3,1 | 6,8 | 4,7 |
Desember | 383,1 | 0,2 | 2,5 | 2,6 | 4,5 |
2011 | |||||
Janúar | 383,2 | 0,0 | 1,5 | 2,0 | 4,4 |
Febrúar | 383,9 | 0,2 | 1,6 | 2,3 | 4,2 |
Mars | 385,2 | 0,3 | 2,2 | 2,4 | 4,4 |
Apríl | 385,6 | 0,1 | 2,5 | 2,0 | 4,4 |
Maí | 389,9 | 1,1 | 6,4 | 4,0 | 5,3 |
Júní | 405,0 | 3,9 | 22,2 | 11,8 | 7,1 |
Júlí | 409,1 | 1,0 | 26,7 | 14,0 | 7,8 |
Ágúst | 409,7 | 0,1 | 21,9 | 13,9 | 8,0 |
September | 412,8 | 0,8 | 7,9 | 14,8 | 8,4 |
Skýring: Launavísitala er reiknuð og birt skv. lögum nr. 89/1989. Vísitalan miðast við regluleg laun í hverjum mánuði og er reiknuð og birt um miðjan næsta mánuð. |
Kaupmáttur launa hefur aukist um 2,6% síðustu 12 mánuði
Vísitala kaupmáttar launa í september er 110,5 stig og hækkar um 0,1% frá fyrri mánuði. Síðustu tólf mánuði hefur vísitala kaupmáttar launa hækkað um 2,6%.
Kjarasamningar á tímabilinu
Í launavísitölu septembermánaðar gætir áhrifa hækkana sem kveðið var á um í nýgerðum kjarasamningum á opinberum markaði.
Þá komu til framkvæmda kjarasamningar nokkurra stéttarfélaga opinberra starfsmanna við Samband íslenskra sveitarfélaga annars vegar og fjármálaráðherra fyrir hönd ríkissjóð hinsvegar. Í þeim var kveðið á um almenna hækkun launataxta og sérstaka 50.000 króna eingreiðslu.