FRÉTT LAUN OG TEKJUR 17. SEPTEMBER 2024

Heildareignir einstaklinga á Íslandi árið 2023 námu 12.284 milljörðum króna og jukust um 14,5% eða úr 10.728 milljörðum króna árið 2022. Sé leiðrétt miðað við verðlag ársins 2023 var aukningin 5,3%. Hlutur fasteigna í heildareignum taldi 9.659 milljarða króna og hækkaði að nafnverði um 15,5% á milli ára.

Heildarskuldir töldu 3.150 milljarða króna árið 2023 en árið 2022 voru skuldir 2.980 milljarðar króna. Er þetta aukning um 5,7% en raunlækkun um 2,8% sé verðlagsleiðrétt.

Meðaltal eigna var 48,4 milljónir króna á framteljanda og miðgildi 9,9 milljónir á meðan meðalskuldir töldu 12,4 milljónir króna og miðgildi var 600 þúsund krónur. Eigið fé jókst úr 7.748 milljörðum árið 2022 í 9.134 milljarða árið 2023 en aukning skýrist á aukinni hækkun eigna umfram skulda.

Eignir teljast sem allar eignir fjölskyldu, þ.m.t. fasteignir, ökutæki, innistæður í bönkum og verðbréf. Verðmæti fasteigna miðast við fasteignamat og hlutabréf eru á nafnvirði.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1250 , netfang laun@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.