Staðgreiðsluskyld launasumma hækkaði um 1,4% í apríl 2024 frá fyrri mánuði. Breyting á milli ára var mismikil eftir atvinnugreinum. Launasumma var um 165,0 milljarðar króna, fjöldi einstaklinga var um 207.600 og fjöldi launagreiðanda um 21.400. Vakin er athygli á því að greiðslur eru ekki verðlagsleiðréttar.