Staðgreiðsluskyld launasumma í apríl 2025 hækkaði um 7,2% á milli ára. Hækkun á milli mánaða frá mars til apríl 2025 var 3,0%. Launasumma í apríl var um 177,5 milljarðar króna. Fjöldi einstaklinga var um 208.900 og fjöldi launagreiðanda um 21.700. Vakin er athygli á því að greiðslur eru ekki verðlagsleiðréttar.