Staðgreiðsluskyld launasumma í janúar hækkaði um 9,5% milli ára. Lækkun varð hins vegar á milli mánaða frá desember 2024 til janúar 2025 um 6,6%. Launasumma í desember var um 167,0 milljarðar króna. Fjöldi einstaklinga var um 205.900 og fjöldi launagreiðanda um 21.000. Vakin er athygli á því að greiðslur eru ekki verðlagsleiðréttar.