Staðgreiðsluskyld launasumma lækkaði um 1,4% í júní 2024 frá fyrri mánuði en hækkun á milli ára var 4,6%. Launasumma var um 171,8 milljarðar króna, fjöldi einstaklinga var um 222.700 og fjöldi launagreiðanda um 22.000. Vakin er athygli á því að greiðslur eru ekki verðlagsleiðréttar.