Staðgreiðsluskyld launasumma í júní 2026 hækkaði um 4,5% á milli ára. Launasumma í júní var um 196,3 milljarðar króna. Fjöldi starfandi einstaklinga var um 224.500 og fjöldi launagreiðanda um 22.600. Greiðslur eru ekki verðlagsleiðréttar.
Athygli er vakin á því að um er að ræða bráðabirgðatölur þar sem mánaðarlegar uppfærslur á staðgreiðsluskrá ná jafnan nokkra mánuði aftur í tímann. Jafnframt eru aðferðir við framleiðslu hagtalna úr staðgreiðslugögnum í stöðugri endurskoðun og gæti bætt verklag haft minniháttar áhrif á niðurstöður.