Staðgreiðsluskyld launasumma hækkaði um 5,2% í maí 2024 frá fyrri mánuði en hækkunin á milli ára var 6,5%. Launasumma var um 173,9 milljarðar króna, fjöldi einstaklinga var um 217.800 og fjöldi launagreiðanda um 21.800. Vakin er athygli á því að greiðslur eru ekki verðlagsleiðréttar.