TALNAEFNI LAUN OG TEKJUR 17. JANÚAR 2025

Staðgreiðsluskyld launasumma hækkaði um 9,0% í nóvember 2024 frá fyrri mánuði. Desemberuppbót sem greidd er með nóvemberlaunum skýrir þessa miklu aukningu á milli mánaða. Hækkun á milli ára var 6,4%. Launasumma var um 183,7 milljarðar króna, fjöldi einstaklinga var um 216.300 og fjöldi launagreiðanda um 22.400. Vakin er athygli á því að greiðslur eru ekki verðlagsleiðréttar.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1250 , netfang laun@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.