Heildartekjur einstaklinga á Íslandi voru rúmar 10,5 milljónir króna að meðaltali árið 2025, eða um 875 þúsund krónur á mánuði. Það er 5,7% hækkun frá fyrra ári. Sé horft til hækkunar verðlags á tímabilinu er raunhækkunin um 1,6%. Miðgildi heildartekna var um 8,8 milljónir króna, sem þýðir að helmingur einstaklinga var með heildartekjur undir 730 þúsund krónum á mánuði. Hækkun miðgildis heildartekna var 5,6%, en sé horft til verðlagsleiðréttingar var hækkunin 1,5%.
Heildartekjur eru samtala atvinnutekna, fjármagnstekna og annarra tekna. Meðaltal atvinnutekna var um 7,2 milljónir árið 2025, meðaltal fjármagnstekna um 1,2 milljónir króna og meðaltal annarra tekna um 2,2 milljónir. Til atvinnutekna teljast allar launatekjur og starfstengdar tekjur, ökutækjastyrkur, dagpeningar og hlunnindi. Til fjármagnstekna teljast vaxtatekjur, arður, söluhagnaður og leigutekjur utan rekstrar. Auk þess teljast tekjur af atvinnurekstri til fjármagnstekna. Til annarra tekna teljast meðal annars lífeyrisgreiðslur, greiðslur frá Tryggingastofnun og aðrar bótagreiðslur á borð við atvinnuleysisbætur, vaxta- og barnabætur.
Samsetning tekna hjá körlum og konum
Árið 2025 var meðaltal heildartekna hjá konum rúmar 790 þúsund krónur á mánuði, en hjá körlum rúmlega 960 þúsund krónur. Á aldursbilinu 25-64 ára var meðaltal heildartekna hjá konum 897 þúsund krónur og hjá körlum 1.088 þúsund krónur á mánuði.
Atvinnutekjur eru almennt stærsti hluti heildartekna, en aðrar tekjur vega þó meira í eldri aldurshópunum. Sé horft til 5 ára aldursbila eru atvinnutekjur karla í öllum tilfellum hærri en atvinnutekjur kvenna. Munur á atvinnutekjum karla og kvenna skýrist meðal annars af ólíkum vinnutíma, störfum og atvinnugreinum.
Fjármagnstekjur eru að jafnaði hærri hjá körlum en konum. Þegar horft er til fólks á aldrinum 25 – 64 ára þá er fjármagnstekjur karla að jafnaði 98 þúsund krónur á mánuði en 88 þúsund hjá konum.
Séu aðrar tekjur skoðaðar, sést að þær eru hærri hjá konum en körlum fram eftir aldri. Til að mynda er meðaltal annara tekna á aldursbilinu 25-64 ára 129 þúsund krónur á mánuði hjá konum en tæpar 92 þúsund krónur hjá körlum. Þetta snýst hins vegar við hjá þeim sem eru eldri en 64 ára þar sem meðaltal annarra tekna er heldur hærra hjá körlum.
Um tekjutölfræði úr skattframtölum
Hagstofan hefur uppfært ítarlegt talnaefni um tekjur einstaklinga fyrir tímabilið 1990 til 2025, sundurliðað eftir sveitarfélögum, aldri, menntun og kyni. Talnaefnið inniheldur upplýsingar um heildar-, atvinnu-,fjármagns- og ráðstöfunartekjur ásamt öðrum tekjum og sköttum þar sem sýnd eru meðaltöl, miðgildi, dreifingar og fjöldi. Ráðstöfunartekjur eru heildartekjur að frádregnum sköttum og greiðslum í lífeyrissjóð
Talnaefnið byggir á skattframtölum einstaklinga, 16 ára og eldri, sem eru skattskyldir hér á landi og skilað hafa framtali til Ríkisskattstjóra. Undanskildir eru þeir sem eru með handreiknað framtal, með áætlaðar tekjur, létust á árinu eða eru ekki búsettir á Íslandi samkvæmt mati Hagstofunnar á íbúafjölda.
Gögnin eru samanburðarhæf milli ára þar sem beitt er samræmdum aðferðum frá ári til árs. Athygli er þó vakin á því að forskráning gagna í skattframtöl hefur dregið úr fjölda framtala sem eru undanskilin úr talnaefninu hin síðari ár og aukið upplýsingagæði sem getur það haft áhrif á samanburð.
Talnaefni eftir sveitarfélögum var því miður ekki hægt að uppfæra við birtingu fréttarinnar en taflan verður uppfærð eins fljótt og hægt er.