FRÉTT LAUN OG TEKJUR 15. JÚLÍ 2024

Heildartekjur einstaklinga á Íslandi voru rúmar 9,2 milljónir króna að meðaltali árið 2023, eða um 770 þúsund krónur á mánuði. Það er rúm 10% hækkun frá fyrra ári. Sé horft til verðlagsleiðréttingar er raunhækkunin um 1,3%. Miðgildi heildartekna var um 7,6 milljónir króna á ári, sem samsvarar því að helmingur einstaklinga var með heildartekjur yfir 636 þúsund krónum á mánuði. Hækkun miðgildis heildartekna var 11,3%, en sé horft til verðlagsleiðréttingar var hækkunin 2,4%.

Meðaltal atvinnutekna var um 6,4 milljónir, meðaltal fjármagnstekna rétt tæpar 1,0 milljón króna og meðaltal annarra tekna um 1,9 milljónir. Heildartekjur eru samtala atvinnutekna, fjármagnstekna og annarra tekna.

Heildartekjur voru hæstar hjá 50 til 54 ára
Við samanburð á meðaltekjum eftir aldurshópum sést að heildartekjur ársins 2023 voru lægstar í aldurshópnum 16 til 19 ára eða um 180 þúsund krónur á mánuði. Rétt er að benda á að hér er um að ræða einstaklingstekjur og margir í þessum aldursflokki eru í námi. Heildartekjur voru hæstar fyrir aldurshópinn 50 til 54 ára eða að jafnaði 1.019 þúsund krónur á mánuði. Meðalheildartekjur 67 ára og eldri voru 715 þúsund krónur.

Í flestum aldurshópum eru atvinnutekjur stærsti hluti heildartekna, þó vega aðrar tekjur mest í eldri aldurshópunum, til að mynda hjá 67 ára og eldri. Til atvinnutekna teljast allar launatekjur og aðrar starfstengdar greiðslur en til annarra tekna teljast meðal annars atvinnuleysisbætur, félagsleg aðstoð og lífeyris- og bótagreiðslur.

Um tekjutölfræði úr skattframtölum
Hagstofan hefur uppfært ítarlegt talnaefni um tekjur einstaklinga fyrir tímabilið 1990 til 2023 sundurliðað eftir sveitarfélögum, aldri og kyni. Talnaefnið inniheldur upplýsingar um heildar-, atvinnu-,fjármagns- og ráðstöfunartekjur ásamt öðrum tekjum og sköttum þar sem sýnd eru meðaltöl, miðgildi, deifingar og fjöldi. Talnaefni um tekjur eftir menntun árið 2023 verður uppfært síðar.

Talnaefnið byggir á skattframtölum einstaklinga, 16 ára og eldri, sem eru skattskyldir hér á landi og skilað hafa framtali til Ríkisskattstjóra. Undanskildir eru þeir sem eru með handreiknað framtal, með áætlaðar tekjur, létust á árinu eða eru búsettir erlendis samkvæmt þjóðskrá. Gögnin eru samanburðarhæf á milli ára þar sem beitt er samræmdum aðferðum frá ári til árs en vakin er athygli á því að forskráning gagna í skattframtöl hefur aukið upplýsingagæði hin síðari ár og getur það haft áhrif á samanburð.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1250 , netfang laun@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.