Tekjusagan.is hefur verið uppfærð með gögnum fyrir árið 2024. Vefurinn sýnir þróun ráðstöfunartekna, eigna og skulda landsmanna auk heildartekna kynja eftir menntun, aldri, búsetu og hjúskaparstöðu.
Meðal upplýsinga sem finna má á vefnum eru:
- Árið 2024 voru samanlagðar ráðstöfunartekjur án fjármagnstekna fyrir hjón eða sambúðarfólk á aldrinum 25-64 ára með 1-2 börn 1.281 þúsund krónur á mánuði.
- Samanlagðar fjármagnstekjur hjóna eða sambúðarfólks á aldrinum 25-64 ára með 1-2 börn lækkuðu að raungildi árið 2024.
- Samanlagðar lífeyrissjóðstekjur hjóna eða sambúðarfólks 68 ára eða eldra hækkuðu árið 2024 og hafa aldrei verið hærri að raungildi. Sama gildir um lífeyrissjóðstekjur einstæðra kvenna og karla. Þetta á við hvort sem viðkomandi þáðu einnig greiðslur frá Tryggingastofnun eða ekki.
- Eiginfjárstaða heimila lækkaði árið 2024. Hún var þó almennt hærri á höfuðborgarsvæðinu en á landsbyggðinni, einkum vegna hærra fasteignaverðs. Þróunin var hins vegar ólík eftir búsetu þar sem eiginfjárstaða lækkaði á höfuðborgarsvæðinu en hækkaði á landsbyggðinni.
- Heildartekjur karla í sambúð voru 32% hærri en einhleypra karla og heildartekjur kvenna í sambúð voru 17% hærri en einhleypra kvenna.
Um Tekjusöguna
Vefur Tekjusögunnar var gerður að frumkvæði forsætisráðuneytisins með gögnum frá Hagstofu Íslands og birtist fyrst árið 2019.
Analytica þróaði og uppfærir reiknilíkan ráðstöfunartekna sem liggur til grundvallar niðurstöðum en Metadata sér um framsetningu gagnanna og vefforritun. Hagstofan hefur umsjón með uppfærslu Tekjusögunnar.
Allar fjárhæðir eru á föstu verðlagi ársins 2024. Eldri tölur hafa verið uppfærðar eftir því sem við á með hliðsjón af nýjum gögnum.