Út er komið hefti Hagtíðinda í efnisflokknum Laun, tekjur og vinnumarkaður þar sem birtar eru niðurstöður vísitölu launa fyrir tímabilið 2005 til 2006.
Vísitala launa á almennum vinnumarkaði hækkaði um 10,3% að meðaltali á milli áranna 2005 og 2006. Laun sérfræðinga hækkuðu mest á tímabilinu eða um 11,5% en laun iðnaðarmanna hækkuðu minnst, 8,8%. Mest hækkuðu laun í samgöngum og flutningum (I) á tímabilinu eða um 12,3% en minnst var hækkun í verslun og ýmissi viðgerðarþjónustu (G) eða 9,1%. Laun opinberra starfsmanna hækkuðu um 10,4% á sama tímabili.
Þetta eru niðurstöður vísitölu launa eftir atvinnugrein og starfsstétt. Vísitala launa, sem nú birtist í fyrsta sinn, endurspeglar þróun reglulegra launa á almennum vinnumarkaði og verður framvegis gefin út ársfjórðungslega.
Vísitala launa 2005–2006 - Hagtíðindi