Út er komið hefti Hagtíðinda í efnisflokknum Laun, tekjur og vinnumarkaður þar sem birtar eru niðurstöður vísitölu launa árið 2009. Í heftinu er fjallað um vísitölu launa og gerð grein fyrir þróun hennar á árinu 2009. Vísitala launa endurspeglar þróun reglulegra launa á íslenskum vinnumarkaði og er gefin út ársfjórðungslega. Birtar eru niðurstöður eftir atvinnugrein og starfsstétt á almennum vinnumarkaði en heildarvísitala opinberra starfsmanna.
Laun á almennum vinnumarkaði hækkuðu um 2,4% að meðaltali á milli áranna 2008 og 2009 samkvæmt vísitölu launa. Laun verkafólks hækkuðu mest á tímabilinu eða um 5,8% en laun stjórnenda lækkuðu um 2,3%. Á sama tímabili hækkuðu laun eftir atvinnugrein mest í iðnaði, um 4,5%, en lækkuðu um 0,4% í fjármálaþjónustu, lífeyrissjóðum og vátryggingum. Þá hækkuðu laun opinberra starfsmanna um 7,1% milli ára.
Vísitala launa 2009 – Hagtíðindi
Talnaefni