Laun á íslenskum vinnumarkaði hækkuðu um 4,7% milli áranna 2009 og 2010 samkvæmt ársmeðaltali vísitölu launa. Þá hækkuðu laun á almennum vinnumarkaði um 6,0% að meðaltali en laun opinberra starfsmanna um 1,9%.
Á almennum vinnumarkaði hækkuðu laun þjónustu-, sölu og afgreiðslufólks mest á milli ára eða um 7,2% en laun stjórnenda hækkuðu minnst eða um 5,1%. Á sama tímabili var hækkun launa eftir atvinnugreinum á bilinu 3,6% til 8,0%. Mest hækkuðu laun í samgöngum og flutningum en minnst í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð.
Þessar niðurstöður má finna í nýju hefti Hagtíðinda Vísitala launa 2010. Í heftinu er fjallað um vísitölu launa og gerð grein fyrir þróun hennar á árinu 2010. Vísitala launa endurspeglar þróun reglulegra launa og er gefin út ársfjórðungslega. Birtar eru niðurstöður eftir atvinnugrein og starfsstétt á almennum vinnumarkaði en heildarvísitala fyrir opinbera starfsmenn.
Vísitala launa 2010 – Hagtíðindi
Talnaefni