FRÉTT LAUN OG TEKJUR 10. JÚNÍ 2011


Laun hækkuðu um 0,5% frá fyrri ársfjórðungi
Regluleg laun voru að meðaltali 0,5% hærri á fyrsta ársfjórðungi 2011 en í ársfjórðungnum á undan. Á sama tímabili hækkuðu laun á almennum vinnumarkaði um 0,6% en laun opinberra starfsmanna hækkuðu um 0,2% að meðaltali. Frá fyrra ári hækkuðu laun um 4,5% að meðaltali; hækkunin var 5,6% á almennum vinnumarkaði og 1,9% hjá opinberum starfsmönnum.

Laun á almennum vinnumarkaði hækkuðu mest í fjármálaþjónustu
Frá fyrri ársfjórðungi mældist hækkun reglulegra launa í fjármálaþjónustu, lífeyrissjóðum og vátryggingum 1,5% en á sama tíma hækkuðu laun í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð um 0,3%. Frá fyrra ári hækkuðu laun mest í fjármálaþjónustu, lífeyrissjóðum og vátryggingum (8,5%) en minnst í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð (2,5%).

Á almennum vinnumarkaði hækkuðu laun sérfræðinga mest frá fyrri ársfjórðungi eða um 1,5% en laun iðnaðarmanna og þjónustufólks hækkuðu að meðaltali um 0,1% á sama tímabili. Laun sérfræðinga hækkuðu jafnframt mest frá fyrra ári eða um 7,6% en laun iðnaðarmanna hækkuðu minnst, um 4,2%.

Breytingar vísitölu launa helstu launaþegahópa 2009-2011
Alls Starfsmenn á almennum vinnumarkaði Opinberir starfsmenn
Breyting Breyting Breyting Breyting Breyting Breyting
frá fyrri frá fyrra frá fyrri frá fyrra frá fyrri frá fyrra
  ársfj., % ári, % ársfj., % ári, % ársfj., % ári, %
2009
1. ársfj. 0,8 6,2 0,3 4,1 1,8 11,3
2. ársfj. 0,2 3,6 0,2 1,2 0 9,5
3. ársfj. 0,7 2,1 0,8 0,8 0,4 4,9
4. ársfj. 1,6 3,2 1,9 3,4 0,8 3
Meðaltal . 3,8 . 2,4 . 7,1
2010
1. ársfj. 1,0 3,5 1,3 4,4 0,3 1,4
2. ársfj. 1,2 4,6 1,5 5,7 0,4 1,9
3. ársfj. 2,0 5,9 2,6 7,6 0,7 2,2
4. ársfj. 0,7 5,0 0,8 6,3 0,5 1,9
Meðaltal . 4,7 . 6,0 . 1,9
2011
1. ársfj. 0,5 4,5 0,6 5,6 0,2 1,9

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.