FRÉTT LAUN OG TEKJUR 07. JÚNÍ 2013

Vinsamlega athugið að þessari fréttatilkynningu var breytt 2. september 2013 9:00 frá upprunalegri útgáfu.

Laun hækkuðu um 2,4% frá fyrri ársfjórðungi
Regluleg laun voru að meðaltali 2,4% hærri á fyrsta ársfjórðungi 2013 en í ársfjórðungnum á undan. Frá fyrra ári hækkuðu laun um 5,2% að meðaltali, hækkunin var 5,8% á almennum vinnumarkaði og 3.7% hjá opinberum starfsmönnum.

Laun á almennum vinnumarkaði eftir atvinnugrein og starfsstétt
Frá fyrri ársfjórðungi mældist hækkun reglulegra launa mest í iðnaði eða um 3,1%. Á sama tímabili hækkuðu laun um 2,5% í atvinnugreinunum samgöngum og byggingarstarfsemi, 2,7% í verslun og 2,9% í fjármálaþjónustu. Frá fyrra ári hækkuðu laun mest í fjármálaþjónustu eða um 7,6% en minnst í iðnaði eða um 5,2%.

Frá fyrri ársfjórðungi var hækkun reglulegra launa eftir starfsstéttum á bilinu 2,4% til 3,2%. Laun verkafólks hækkuðu mest en laun þjónustu-, sölu- og afgreiðslufólks hækkuðu minnst. Laun sérfræðinga hækkuðu mest frá fyrra ári eða um 7,2% en laun verkafólks hækkuðu minnst, um 4,7%. Á sama tímabili hækkuðu regluleg laun iðnaðarmanna um 5,2%, tækna um 5,5%, stjórnenda um 6,2% og skrifstofufólks um 6,7%.

Helstu kjarasamningar á tímabilinu
Í vísitölu launa á fyrsta ársfjórðungi 2013 gætir áhrifa hækkana sem kveðið var á um í kjarasamningum sem undirritaðir voru á árinu 2011. Í kjarasamningum milli aðildarfélaga Alþýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins var kveðið á um almenna hækkun launataxta um 3,25% þann 1. febrúar 2013. Í kjarasamningum fjármálaráðherra, fyrir hönd ríkissjóðs, við stærstu stéttarfélög opinberra starfsmanna var almenn hækkun launataxta um 3,25% í mars 2013 og í kjarasamningum milli Sambands íslenskra sveitarfélaga við stærstu stéttarfélög opinberra starfsmanna var kveðið á um hækkanir á launatöflum frá 1. mars 2013.

Talnaefni

 

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.