FRÉTT LAUN OG TEKJUR 28. ÁGÚST 2007

Vísitala launa er 120,2 stig á öðrum ársfjórðungi 2007 og hækkaði um 1,4% frá fyrri ársfjórðungi.  Vísitala launa á almennum vinnumarkaði hækkaði um 1,5% á sama tímabili og vísitala launa fyrir opinbera starfsmenn um 1,1%.

Árshækkun vísitölu launa var 10,6% á öðrum ársfjórðungi 2007, 11,7% á almennum vinnumarkaði og 8,1% hjá opinberum starfsmönnum. 

Vísitala launa á almennum vinnumarkaði eftir starfsstétt
Ársfjórðungshækkun reglulegra launa var mest hjá sérfræðingum, 2,5% en minnst hjá iðnaðarmönnum, 0,7%. Regluleg laun skrifstofufólks hækkuðu mest frá öðrum ársfjórðungi 2006 eða um 13,2% en regluleg laun iðnaðamanna hækkuðu minnst, 9,8%.

Vísitala launa á almennum vinnumarkaði eftir atvinnugrein
Ársfjórðungshækkun reglulegra launa var mest í fjármálaþjónustu, lífeyrissjóðum og vátryggingum (J) eða 3,0% en minnst var hækkunin í iðnaði (D), 0,6%.  Frá öðrum ársfjórðungi 2006 hækkuðu regluleg laun í fjármálaþjónustu, lífeyrissjóðum og vátryggingum (J) mest eða um 15,0% en minnst var hækkunin í verslun og ýmissi viðgerðarþjónustu (G), 10,4%.

Vísitala launa helstu launaþegahópa 2006-2007
Meðaltal 2005 =100 Alls Starfsmenn á almennum vinnumarkaði Opinberir starfsmenn
Vísitala Breyting frá fyrri ársfj.,% Breyting frá fyrra ári, % Vísitala Breyting frá fyrri ársfj.,% Breyting frá fyrra ári, % Vísitala Breyting frá fyrri ársfj., % Breyting frá fyrra ári, %
2006
2. ársfj. 108,7 1,7 9,4 108,2 1,4 8,9 109,8 2,4 10,6
3. ársfj. 112,0 3,0 11,0 112,1 3,6 11,4 111,6 1,7 10,1
4. ársfj. 114,0 1,8 11,2 114,3 1,9 11,5 113,2 1,4 10,3
Meðaltal 110,3 . 10,3 110,3 . 10,3 110,4 . 10,4
2007
1. ársfj. 118,6 4,1 11,0 119,1 4,2 11,7 117,4 3,7 9,5
2. ársfj. 120,2 1,4 10,6 120,9 1,5 11,7 118,6 1,1 8,1

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.