FRÉTT LAUN OG TEKJUR 08. DESEMBER 2010


Laun hækkuðu um 2,0% frá fyrri ársfjórðungi
Samkvæmt vísitölu launa voru regluleg laun að meðaltali 2,0% hærri á þriðja ársfjórðungi 2010 en í ársfjórðungnum á undan. Á sama tímabili hækkuðu laun á almennum vinnumarkaði um 2,6% en laun opinberra starfsmanna um 0,7% að meðaltali.  Frá fyrra ári hækkuðu laun um 6,0%, þar af 7,6% á almennum vinnumarkaði og 2,2% hjá opinberum starfsmönnum.


 

Laun á almennum vinnumarkaði hækkuðu minnst í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð
Frá fyrri ársfjórðungi hækkuðu laun skrifstofufólks mest eða um 3,1% en laun iðnaðarmanna minnst eða um 2,3%.  Frá fyrra ári hækkuðu laun á bilinu 6,9% til 8,6%, mest hækkuðu laun þjónustu-, sölu- og afgreiðslufólks en stjórnenda minnst.


Frá fyrri ársfjórðungi mældist hækkun launa í fjármálaþjónustu, lífeyrissjóðum og vátryggingum 3,5% en laun í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð 1,8%. Frá fyrra ári hækkuðu regluleg laun mest í samgöngum og flutningum 9,3 % en minnst í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð um 5,9%.


Áhrif kjarasamninga
Vísitala launa byggir á meðaltali reglulegra launa í hverjum ársfjórðungi. Áhrifa kjarasamningsbundinna launabreytinga sem komu til framkvæmda undir lok annars ársfjórðungs 2010 má því jafnframt greina í samanburði launa á öðrum og þriðja ársfjórðungi ársins.

Breytingar vísitölu launa helstu launaþegahópa 2009-2010
     

Starfsmenn á almennum

   
Alls  vinnumarkaði Opinberir starfsmenn
Breyting Breyting Breyting Breyting Breyting Breyting
frá fyrri frá fyrra frá fyrri frá fyrra frá fyrri frá fyrra
  ársfj., % ári, % ársfj., % ári, % ársfj., % ári, %
2009
1. ársfj. 0,8 6,2 0,3 4,1 1,8 11,3
2. ársfj. 0,2 3,6 0,2 1,2 0,0 9,5
3. ársfj. 0,7 2,1 0,8 0,8 0,4 4,9
4. ársfj. 1,6 3,2 1,9 3,4 0,8 3,0
Meðaltal . 3,8 . 2,4 . 7,1
2010
1. ársfj. 1,0 3,5 1,3 4,4 0,3 1,4
2. ársfj. 1,2 4,6 1,5 5,7 0,4 1,9
3. ársfj. 2,0 6,0 2,6 7,6 0,7 2,2

Talnaefni


 

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.