FRÉTT LAUN OG TEKJUR 09. DESEMBER 2011

Vinsamlega athugið að þessari fréttatilkynningu var breytt 2. september 2013 9:00 frá upprunalegri útgáfu. 

Laun hækkuðu um 4,3% frá fyrri ársfjórðungi
Regluleg laun voru að meðaltali 4,3% hærri á þriðja ársfjórðungi 2011 en í ársfjórðungnum á undan. Á sama tímabili hækkuðu laun á almennum vinnumarkaði um 3,9% en laun opinberra starfsmanna hækkuðu um 5,1% að meðaltali. Frá fyrra ári hækkuðu laun um 8,2% að meðaltali, hækkunin var 8,5% á almennum vinnumarkaði og 7,4% hjá opinberum starfsmönnum.

Laun á almennum vinnumarkaði eftir atvinnugrein og starfsstétt
Frá fyrri ársfjórðungi mældist hækkun reglulegra launa í samgöngum og fjármálaþjónustu 4,3% en í verslun og ýmissi viðgerðaþjónustu var hækkunin 3,6%. Frá fyrra ári hækkuðu laun mest í fjármálaþjónustu, lífeyrissjóðum og vátryggingum eða um 10,7% en minnst í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð um 5,7%.

Þá hækkuðu laun verkafólks mest frá fyrri ársfjórðungi eða um 4,5% en laun stjórnenda hækkuðu að meðaltali um 3,0% á sama tímabili.  Laun sérfræðinga hækkuðu mest frá fyrra ári eða um 9,6% en laun stjórnenda og iðnaðarmanna hækkuðu minnst, um 7,2%.


Helstu kjarasamningar á tímabilinu
Í vísitölu launa á þriðja ársfjórðungi gætir áhrifa hækkana sem kveðið var á um í kjarasamningum á íslenskum vinnumarkaði síðastliðið sumar.

Breytingar vísitölu launa helstu launaþegahópa 2009-2011
Alls Starfsmenn á almennum vinnumarkaði Opinberir starfsmenn
Breyting Breyting Breyting Breyting Breyting Breyting
frá fyrri frá fyrra frá fyrri frá fyrra frá fyrri frá fyrra
  ársfj., % ári, % ársfj., % ári, % ársfj., % ári, %
2009
1. ársfj. 0,8 6,2 0,3 4,1 1,8 11,3
2. ársfj. 0,2 3,6 0,2 1,2 0,0 9,5
3. ársfj. 0,7 2,1 0,8 0,8 0,4 4,9
4. ársfj. 1,6 3,2 1,9 3,4 0,8 3,0
Meðaltal . 3,8 . 2,4 . 7,1
2010
1. ársfj. 1,0 3,5 1,3 4,4 0,3 1,4
2. ársfj. 1,2 4,6 1,5 5,7 0,4 1,9
3. ársfj. 2,0 5,9 2,6 7,6 0,7 2,2
4. ársfj. 0,7 5,0 0,8 6,3 0,5 1,9
Meðaltal . 4,7 . 6,0 . 1,9
2011
1. ársfj. 0,5 4,5 0,6 5,6 0,2 1,9
2. ársfj. 2,5 5,8 2,9 7,1 1,5 3,0
3. ársfj. 4,3 8,2 3,9 8,5 5,1 7,4

 

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.