FRÉTT LAUN OG TEKJUR 06. DESEMBER 2013


Laun hækkuðu um 0,5% frá fyrri ársfjórðungi

Regluleg laun voru að meðaltali 0,5% hærri á þriðja ársfjórðungi 2013 en í ársfjórðungnum á undan. Frá fyrra ári hækkuðu laun um 5,9% að meðaltali, hækkunin var 6,1% á almennum vinnumarkaði og 5,3% hjá opinberum starfsmönnum. Á sama tímabili hækkuðu laun ríkisstarfsmanna um 5,7% en hjá starfsmönnum sveitarfélaga um 5,0%.

 


Laun á almennum vinnumarkaði eftir atvinnugrein og starfsstétt
Frá fyrri ársfjórðungi mældist hækkun reglulegra launa mest í samgöngum eða um 1,2%. Þá hækkuðu laun milli ársfjórðunga um 1,1% í byggingarstarfsemi, 0,4% í iðnaði og í fjármálaþjónustu og 0,3% í verslun. Frá fyrra ári hækkuðu laun mest í samgöngum eða um 7,0% en minnst í iðnaði eða um 5,6%. 

Frá fyrri ársfjórðungi var hækkun reglulegra launa eftir starfsstéttum á bilinu 0,2% til 1,0%. Laun skrifstofufólks hækkuðu mest en laun verkafólks hækkuðu minnst. Frá fyrra ári hækkuðu laun skrifstofufólks mest eða um 7,8% en laun stjórnenda hækkuðu minnst eða um 4,9%. Á sama tíma hækkuðu regluleg laun sérfræðinga um 6,9%, þjónustu-, sölu- og afgreiðslufólks og tækna um 6,4%, verkafólks um 5,7%.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.