FRÉTT LAUN OG TEKJUR 12. DESEMBER 2014

Laun hækkuðu um 1,4% frá fyrri ársfjórðungi
Regluleg laun voru að meðaltali 1,4% hærri á þriðja ársfjórðungi 2014 en á ársfjórðungnum á undan. Frá fyrra ári hækkuðu laun um 6,3% að meðaltali, hækkunin var 5,9% á almennum vinnumarkaði og 7,6% hjá opinberum starfsmönnum. Þar af hækkuðu laun ríkisstarfsmanna um 6,8% en 8,4% hjá starfsmönnum sveitarfélaga.

 

Laun á almennum vinnumarkaði eftir atvinnugrein og starfsstétt
Frá fyrri ársfjórðungi mældist hækkun reglulegra launa mest í samgöngum eða um 1,7%. Þá hækkuðu laun milli ársfjórðunga um 1,1% í byggingarstarfsemi, 1,0% í fjármálaþjónustu, 0,3% í verslun og 0,1% í iðnaði. Frá fyrra ári hækkuðu laun mest í byggingarstarfsemi eða um 7,9% en minnst í iðnaði eða um 4,3%.

Frá fyrri ársfjórðungi var hækkun reglulegra launa eftir starfsstéttum á bilinu 0,1% til 1,1%. Laun skrifstofufólks hækkuðu mest en laun verkafólks minnst. Frá fyrra ári hækkuðu laun þjónustu-, sölu- og afgreiðslufólks mest eða um 6,9% en laun verkafólks minnst eða um 5,2%. Á sama tíma hækkuðu regluleg laun tækna og sérmenntaðs starfsfólks um 6,3%, skrifstofufólks um 6,2%, sérfræðinga um 6,1%, iðnaðarmanna um 5,5% og stjórnenda um 5,3%.

Kjarasamningar
Í vísitölu launa á þriðja ársfjórðungi 2014 gætir áhrifa kjarasamnings ríkis við háskóla- og framhaldsskólakennara annars vegar og sveitarfélaga við grunnskóla- og leikskólakennara hins vegar sem undirritaðir voru á fyrri hluta árs 2014. Þá gætir áhrifa kjarasamninga fjármála- og efnahagsráðherra fyrir hönd ríkissjóðs og Sambands íslenskra sveitarfélaga við nokkur stéttarfélög opinberra starfsmanna sem undirritaðir voru á öðrum ársfjórðungi 2014.

Um vísitölu launa
Vísitala launa endurspeglar þróun reglulegra launa og er gefin út ársfjórðungslega. Birtar eru niðurstöður eftir atvinnugrein og starfsstétt á almennum vinnumarkaði en fyrir opinbera starfsmenn eru niðurstöður birtar eftir stjórnsýslustigi. Opinberir starfsmenn teljast þeir starfsmenn sem eru starfsmenn sveitarfélaga og þeir starfsmenn ríkis sem fá greidd laun frá fjársýslu ríkisins. Aðrir tilheyra almennum vinnumarkaði. 

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.