FRÉTT LAUN OG TEKJUR 09. DESEMBER 2015


Laun hækkuðu um 3,5% frá fyrri ársfjórðungi
Regluleg laun voru að meðaltali 3,5% hærri á þriðja ársfjórðungi 2015 en á ársfjórðungnum á undan. Árshækkun frá þriðja ársfjórðungi 2014 var 7,9% að meðaltali, hækkunin var 8,3% á almennum vinnumarkaði og 6,7% hjá opinberum starfsmönnum. Þar af hækkuðu laun ríkisstarfsmanna um 6,0% og laun starfsmanna sveitarfélaga um 7,4%.

 

Laun hækkuðu mest í byggingarstarfsemi
Frá fyrri ársfjórðungi var hækkun reglulegra launa eftir starfsstétt á bilinu 1,7% til 6,0%. Laun verkafólks hækkuðu mest en sérfræðinga minnst milli ársfjórðunga. Árshækkun frá þriðja ársfjórðungi 2014 var einnig mest hjá verkafólki eða um 11,0% en minnst hjá stjórnendum og sérfræðingum eða um 5,3%. Á sama tíma hækkuðu regluleg laun þjónustu-, sölu- og afgreiðslufólks um 10,3%, sérmenntaðs starfsfólks um 7,7% og iðnaðarmanna um 7,3%.

Frá fyrri ársfjórðungi mældist hækkun reglulegra launa mest í byggingarstarfsemi eða um 5,2%. Þá hækkuðu laun á milli ársfjórðunga um 4,5% í iðnaði, 4,0% í samgöngum, 3,7% í verslun og 2,0% í fjármálaþjónustu. Árshækkun frá þriðja ársfjórðungi 2014 var mest í samgöngum eða um 9,4% en minnst í fjármálaþjónustu eða um 4,7%.

Kjarasamningar
Í vísitölu launa á þriðja ársfjórðungi 2015 gætir áhrifa kjarasamninga á almennum vinnumarkaði sem voru undirritaðir í maí og júní síðastliðnum, meðal annars á milli Samtaka atvinnulífsins og stærstu aðildarfélaga Alþýðusambands Íslands. Þar var kveðið á um sérstaka hækkun kauptaxta, breytingar á launatöflum og launaþróunartryggingu, að lágmarki 3,2%. Að auki gætir áhrifa af endurskoðun starfsmatskerfis sveitarfélaga, sem gerð er í samræmi við bókun 2 í gildandi kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga og stéttarfélaga innan BSRB og ASÍ, sem samið hafa um starfsmat. Í vísitölunni gætir einnig áhrifa úrskurðar gerðardóms um launahækkanir fyrir félagsmenn í Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga og 18 stéttarfélögum í Bandalagi háskólamanna.

Um vísitölu launa
Vísitala launa endurspeglar þróun reglulegra launa og er gefin út ársfjórðungslega. Birtar eru niðurstöður eftir atvinnugrein og starfsstétt á almennum vinnumarkaði en fyrir opinbera starfsmenn eru niðurstöður birtar eftir stjórnsýslustigi. Opinberir starfsmenn teljast þeir starfsmenn sem eru starfsmenn sveitarfélaga og þeir starfsmenn ríkis sem fá greidd laun frá fjársýslu ríkisins. Aðrir tilheyra almennum vinnumarkaði.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1250 , netfang laun@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.