FRÉTT LAUN OG TEKJUR 08. MARS 2010


Laun hækkuðu um 1,6% frá fyrri ársfjórðungi
Samkvæmt vísitölu launa voru regluleg laun að meðaltali 1,6% hærri á fjórða ársfjórðungi 2009 en í ársfjórðungnum á undan. Á sama tímabili hækkuðu laun á almennum vinnumarkaði um 1,9% að meðaltali en laun opinberra starfsmanna hækkuðu um 0,8%.  Frá fyrra ári hækkuðu laun um 3,2%, þar af um 3,4% á almennum vinnumarkaði og um 3,0% hjá opinberum starfsmönnum.


 

Laun í verslun á almennum vinnumarkaði hækkuðu mest frá fyrri ársfjórðungi
Frá fyrri ársfjórðungi hækkuðu laun þjónustu-, sölu- og afgreiðslufólks mest eða um 2,7% en laun sérfræðinga hækkuðu  minnst eða um 1,1%.  Frá fyrra ári hækkuðu laun á bilinu -0,2% til 5,7%, mest hækkuðu laun verkamanna en minnst stjórnenda.

Frá fyrri ársfjórðungi mældist hækkun launa í verslun og ýmissi viðgerðarþjónustu 2,6%. Á sama tímabili hækkuðu laun í fjármálaþjónustu, lífeyrissjóðum og vátryggingum um 0,6%. Frá fyrra ári hækkuðu regluleg laun mest í iðnaði um 5,0 % en laun í byggingastarfsemi og mannvirkjagerð lækkuðu um 0,9% á sama tímabili.
 
Kjarasamningar sem komu til framkvæmda á tímabilinu
Samkvæmt samkomulagi um breytingar á kjarasamningum milli aðildarfélaga Alþýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins sem undirritað var þann 25. júní síðastliðinn komu launabreytingar, sem samkvæmt fyrri samningum áttu að taka gildi 1. mars 2009, til framkvæmda í tvennu lagi, 1. júlí og 1. nóvember. Samkvæmt samkomulaginu hækkuðu almennir launataxtar um 6.750-8.750 krónur þann 1. júlí  og um sömu upphæð 1. nóvember 2009. Í samkomulaginu var einnig kveðið á um að almenn 3,5% launaþróunartrygging kæmi til framkvæmda 1. nóvember 2009.

Í júlí síðastliðnum voru undirritaðar breytingar og framlenging kjarasamninga flestra aðildarfélaga Bandalags starfsmanna ríkis og bæja og Alþýðusambands Íslands annars vegar  og ríkis og sveitarfélaga hins vegar. Samkvæmt samningunum var gert ráð fyrir hækkun launataxta í þremur  áföngum, þann 1. júlí 2009, 1. nóvember 2009 og 1. júní 2010. Samkvæmt samningunum hækkuðu lægstu launaflokkar um 6.750 krónur þann 1. júlí og 1. nóvember 2009.

Breytingar vísitölu launa helstu launaþegahópa 2006-2009
     

Starfsmenn á almennum

   
Alls  vinnumarkaði Opinberir starfsmenn
Breyting Breyting Breyting Breyting Breyting Breyting
frá fyrri frá fyrra frá fyrri frá fyrra frá fyrri frá fyrra
  ársfj., % ári, % ársfj., % ári, % ársfj., % ári, %
2006
1. ársfj. 4,2 9,7 4,1 9,3 4,5 10,6
2. ársfj. 1,7 9,4 1,4 8,9 2,4 10,6
3. ársfj. 3,0 11,0 3,6 11,4 1,7 10,1
4. ársfj. 1,8 11,2 1,9 11,5 1,4 10,3
Meðaltal . 10,3 . 10,3 . 10,4
2007
1. ársfj. 4,1 11,0 4,2 11,7 3,7 9,5
2. ársfj. 1,4 10,6 1,5 11,7 1,1 8,1
3. ársfj. 1,3 8,8 1,5 9,4 1,0 7,4
4. ársfj. 1,5 8,4 1,8 9,2 0,8 6,7
Meðaltal . 9,7 . 10,4 . 7,9
2008
1. ársfj. 2,8 7,1 2,6 7,5 3,1 6,1
2. ársfj. 2,6 8,5 3,1 9,2 1,6 6,7
3. ársfj. 2,2 9,4 1,1 8,9 4,8 10,7
4. ársfj. 0,4 8,3 -0,5 6,4 2,7 12,7
Meðaltal . 8,3 . 8,0 . 9,0
2009
1. ársfj. 0,8 6,2 0,3 4,1 1,8 11,3
2. ársfj. 0,2 3,6 0,2 1,2 0,0 9,5
3. ársfj. 0,7 2,1 0,8 0,8 0,4 4,9
4. ársfj. 1,6 3,2 1,9 3,4 0,8 3,0
Meðaltal . 3,8 . 2,4 . 7,1

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.