FRÉTT LAUN OG TEKJUR 09. MARS 2012

Vinsamlega athugið að þessari fréttatilkynningu var breytt 2. september 2013 9:00 frá upprunalegri útgáfu. 

Laun hækkuðu um 1,7% frá fyrri ársfjórðungi
Regluleg laun voru að meðaltali 1,7% hærri á fjórða ársfjórðungi 2011 en í ársfjórðungnum á undan. Frá fyrra ári hækkuðu laun um 9,2% að meðaltali, hækkunin var 9,4% á almennum vinnumarkaði og 8,7% hjá opinberum starfsmönnum.


 

Laun á almennum vinnumarkaði eftir atvinnugrein og starfsstétt
Frá fyrri ársfjórðungi mældist hækkun reglulegra launa í samgöngum og flutningum 2,2% en í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð var hækkunin 0,6%. Frá fyrra ári hækkuðu laun mest í fjármálaþjónustu, lífeyrissjóðum og vátryggingum eða um 10,9% en minnst í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð um 7,1%.

Þá hækkuðu laun þjónustu-, sölu og afgreiðslufólks mest frá fyrri ársfjórðungi eða um 2,4% en laun stjórnenda hækkuðu að meðaltali um 1,0% á sama tímabili.  Laun verkafólks hækkuðu mest frá fyrra ári eða um 10,4% en laun stjórnenda hækkuðu minnst, um 7,6%.

Breytingar vísitölu launa helstu launaþegahópa 2009-2011
Alls Starfsmenn á almennum vinnumarkaði Opinberir starfsmenn
Breyting Breyting Breyting Breyting Breyting Breyting
frá fyrri frá fyrra frá fyrri frá fyrra frá fyrri frá fyrra
  ársfj., % ári, % ársfj., % ári, % ársfj., % ári, %
2009
1. ársfj. 0,8 6,2 0,3 4,1 1,8 11,3
2. ársfj. 0,2 3,6 0,2 1,2 0 9,5
3. ársfj. 0,7 2,1 0,8 0,8 0,4 4,9
4. ársfj. 1,6 3,2 1,9 3,4 0,8 3
Meðaltal . 3,8 . 2,4 . 7,1
2010
1. ársfj. 1,0 3,5 1,3 4,4 0,3 1,4
2. ársfj. 1,2 4,6 1,5 5,7 0,4 1,9
3. ársfj. 2,0 5,9 2,6 7,6 0,7 2,2
4. ársfj. 0,7 5,0 0,8 6,3 0,5 1,9
Meðaltal . 4,7 . 6,0 . 1,9
2011
1. ársfj. 0,5 4,5 0,6 5,6 0,2 1,9
2. ársfj. 2,5 5,5 2,9 7,1 1,5 3,0
3. ársfj. 4,3 8,2 3,9 8,5 5,1 7,4
4. ársfj. 1,7 9,2 1,6 9,4 1,7 8,7
Meðaltal . 6,9 . 7,6 . 5,2

Talnaefni


 

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.