FRÉTT LAUN OG TEKJUR 06. MARS 2015


Laun hækkuðu um 1,3% frá fyrri ársfjórðungi
Regluleg laun voru að meðaltali 1,3% hærri á fjórða ársfjórðungi 2014 en á ársfjórðungnum á undan. Árshækkun frá fjórða ársfjórðungi 2013 var 6,7% að meðaltali, hækkunin var 6,0% á almennum vinnumarkaði og 8,4% hjá opinberum starfsmönnum. Þar af hækkuðu laun ríkisstarfsmanna um 6,8% og laun starfsmanna sveitarfélaga um 10,3%.

Á milli áranna  2013 og 2014 hækkuðu regluleg laun um 6,0% að meðaltali. Starfsmenn á almennum vinnumarkaði hækkuðu um 5,8%, ríkisstarfsmenn um 6,2% og starfsmenn sveitarfélaga um 6,5%. 

 


Stjórnendur hækka minnst á milli ára
Frá fyrri ársfjórðungi var hækkun reglulegra launa eftir starfsstéttum á bilinu 0,4% til 2,0%. Laun þjónustu-, sölu- og afgreiðslufólks hækkuðu mest en laun iðnaðarmanna minnst milli ársfjórðunga. Árshækkun frá fjórða ársfjórðungi 2013 var mest hjá þjónustu-, sölu- og afgreiðslufólks eða um 7,7% en minnst hjá stjórnendum eða um 5,2%. Á sama tíma hækkuðu regluleg laun tækna og sérmenntaðs starfsfólks um 6,5%, skrifstofufólks um 6,2%, sérfræðinga um 5,9%, verkafólks um 5,6% og iðnaðarmanna um 5,3%. Á milli áranna 2013 og 2014 var hækkun launa eftir starfsstéttum á bilinu 5,2% og 7,0%, mest hjá þjónustu-, sölu- og afgreiðslufólki en minnst hjá stjórnendum.

Frá fyrri ársfjórðungi mældist hækkun reglulegra launa mest í verslun eða um 1,7%. Þá hækkuðu laun milli ársfjórðunga um 1,2% í iðnaði, 1,1% í samgöngum, 0,9% í fjármálaþjónustu og 0,4% í byggingarstarfsemi.  Árshækkun frá fjórða ársfjórðungi 2013 var mest í samgöngum eða um 7,2% en minnst í iðnaði eða um 4,6%.  Á milli áranna 2013 og 2014 var hækkun launa í byggingarstarfsemi 7,4%, í samgöngum 6,8%, í fjármálaþjónustu 6,1%, í verslun 6,0% og í iðnaði 4,6%.


Um vísitölu launa
Vísitala launa endurspeglar þróun reglulegra launa og er gefin út ársfjórðungslega. Birtar eru niðurstöður eftir atvinnugrein og starfsstétt á almennum vinnumarkaði en fyrir opinbera starfsmenn eru niðurstöður birtar eftir stjórnsýslustigi. Opinberir starfsmenn teljast þeir starfsmenn sem eru starfsmenn sveitarfélaga og þeir starfsmenn ríkis sem fá greidd laun frá fjársýslu ríkisins. Aðrir tilheyra almennum vinnumarkaði. 

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.