FRÉTT LÍFSKJÖR 19. NÓVEMBER 2010

Lífskjararannsókn Hagstofu Íslands 2010 sýnir að 10,1% heimila voru í vanskilum með húsnæðislán eða leigu einhvern tíma síðastliðnu 12 mánuði og 13,3% voru í vanskilum með önnur lán. Nálega helmingur heimila átti erfitt með að ná endum saman á árinu. 16,5% heimila töldu húsnæðiskostnað þunga byrði og 19,2% töldu greiðslubyrði annarra lána en húsnæðislána eða leigu þunga. Tæp 36% heimila gátu ekki mætt óvæntum útgjöldum að upphæð 140 þúsund krónur eftir hefðbundnum leiðum. Þegar heildarmyndin er skoðuð var fjárhagsstaða heimilanna verri árið 2010 en næstu ár á undan.


Skýringar: Öryggisbil (95%) 2010: Getur ekki mætt óvæntum útgjöldum ±2,0; erfitt að ná endum saman ±2,0.


Þegar horft er til heimilisgerðar kemur í ljós að einstæðir foreldrar áttu helst í fjárhagsvanda árið 2010. Barnlaus heimili þar sem fleiri en einn er fullorðinn stóðu best fjárhagslega. Heimili þar sem meðalaldur fullorðinna einstaklinga var 30-39 ár virtust eiga í mestum vanda þegar litið var til aldurs. Almennt má segja að því hærri sem meðalaldur fullorðinna einstaklinga er í heimili, því betur stendur það fjárhagslega.

Hagstofa Íslands hefur í dag gefið út Hagtíðindi þar sem nánar er fjallað um niðurstöður lífskjararannsóknarinnar. Rannsóknin er hluti af samræmdri lífskjararannsókn Evrópusambandsins (EU-SILC). Heildarúrtak í rannsókninni var 4.218 heimili. Að frádregnum látnum einstaklingum og þeim sem búsettir voru erlendis var úrtakið 3.968 heimili. Svör fengust frá 3.021 heimili en það er 76% svarhlutfall. Lífskjararannsóknin fór fram í mars, apríl og maí á þessu ári.

Fjárhagsstaða heimilanna 2004-2010 - Hagtíðindi

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.