FRÉTT LÍFSKJÖR 25. NÓVEMBER 2026

Hlutfall einstaklinga sem bjuggu á heimilum með íþyngjandi húsnæðiskostnað var 9,1% árið 2026, eða um 36.000 einstaklingar. Húsnæðiskostnaður telst íþyngjandi þegar hann nemur meira en 40% af ráðstöfunartekjum heimilisins.

Við útreikning á byrði húsnæðiskostnaðar eru afborganir af höfuðstól húsnæðislána ekki meðtaldar en vaxtakostnaður og verðbætur teljast með. Nánari skýringar á húsnæðiskostnaði eru í hugtakaskýringum neðar í fréttinni.

Á árunum 2021–2026 var hlutfall einstaklinga á heimilum með íþyngjandi húsnæðiskostnað á bilinu 7,0% til 9,2%, lægst árið 2022 og hæst árið 2024. Breytingar milli samliggjandi ára voru allar innan skekkjumarka. Árið 2026 bjuggu 8,1% barna yngri en 18 ára á heimilum með íþyngjandi húsnæðiskostnað.

Íþyngjandi húsnæðiskostnaður algengari í leiguhúsnæði
Öll árin 2021–2026 var íþyngjandi húsnæðiskostnaður algengari hjá einstaklingum í leiguhúsnæði en hjá einstaklingum í eigin húsnæði. Árið 2026 bjuggu 23,4% einstaklinga í leiguhúsnæði á heimilum með íþyngjandi húsnæðiskostnað samanborið við 5,4% einstaklinga í eigin húsnæði.

Í úrtakinu eru einstaklingar í leiguhúsnæðis færri en einstaklingar í eigin húsnæði og öryggisbil hlutfallsins hjá einstaklingum í leiguhúsnæði er breitt, eða 16,2–30,6% árið 2026. Einstaklingar í endurgjaldslausu húsnæði eru taldir með í heildarhlutfallinu en eru ekki sýndir sérstaklega þar sem þeir eru mjög fáir í úrtakinu.

Íþyngjandi húsnæðiskostnaður algengastur í lægsta tekjufimmtungi
Árið 2026 bjuggu 29,5% einstaklinga í lægsta tekjufimmtungi á heimilum með íþyngjandi húsnæðiskostnað samanborið við 0,4% einstaklinga í hæsta tekjufimmtungi. Miðgildi hlutfalls húsnæðiskostnaðar af ráðstöfunartekjum var 31,9% hjá einstaklingum í lægsta tekjufimmtungi sama ár samanborið við 13,0% hjá einstaklingum í þeim hæsta.

Íþyngjandi húsnæðiskostnaður algengari á heimilum með einum fullorðnum
Árið 2026 var íþyngjandi húsnæðiskostnaður algengari á heimilum þar sem einn fullorðinn býr en á heimilum tveggja eða fleiri fullorðinna. Húsnæðiskostnaður var íþyngjandi hjá 26,5% þeirra sem búa einir og hjá 17,0% einstaklinga á heimilum einstæðra foreldra. Hann var íþyngjandi hjá 7,0% einstaklinga á heimilum tveggja eða fleiri fullorðinna án barna og hjá 4,6% á slíkum heimilum með börn.

Byrði húsnæðiskostnaðar hefur hækkað frá árinu 2021
Miðgildi hlutfalls húsnæðiskostnaðar af ráðstöfunartekjum var 20,7% árið 2026 samanborið við 19,1% árið 2021. Hjá einstaklingum í eigin húsnæði hækkaði það úr 18,0% í 19,4% á sama tíma. Hjá einstaklingum í leiguhúsnæði var miðgildið 27,1% árið 2026 og var það hærra en hjá einstaklingum í eigin húsnæði öll árin 2021–2026.

Fleiri telja húsnæðiskostnað þunga byrði en árið 2021
Árið 2026 bjuggu 19,5% einstaklinga á heimilum þar sem húsnæðiskostnaðar var þung byrði að mati þátttakandans samanborið við 11,9% árið 2021. Hjá einstaklingum í eigin húsnæði hækkaði hlutfallið úr 9,6% í 19,4% á sama tíma. Hjá einstaklingum í leiguhúsnæði var það 22,3% árið 2026.

Við eigið mat á byrðinni eru þátttakendur beðnir um að hafa afborganir húsnæðislána með í huga en þær eru undanskildar í útreikningi á byrði húsnæðiskostnaðar.

Mikill munur á íþyngjandi húsnæðiskostnaði á milli Evrópuríkja
Árið 2025 bjuggu 9,1% einstaklinga á Íslandi á heimilum með íþyngjandi húsnæðiskostnað. Meðaltalið í ríkjum Evrópusambandsins var 7,6%. Hlutfallið var lægst á Kýpur, eða 2,4%, og hæst í Grikklandi, eða 26,4%. Á hinum Norðurlöndunum var það lægst í Finnlandi, eða 4,7%, og hæst í Danmörku, eða 14,7%. Nýjustu tölur fyrir evrópskan samanburð eru fyrir árið 2025 en nýjustu íslensku tölurnar eru fyrir árið 2026.

Miðgildi hlutfalls húsnæðiskostnaðar af ráðstöfunartekjum var 19,3% á Íslandi árið 2025 samanborið við 13,6% í Evrópusambandinu í heild. Aðeins í Grikklandi, Danmörku og Noregi var miðgildið hærra en á Íslandi. Lægst var það á Möltu, eða 5,7%.

Hugtakaskýringar
Húsnæðiskostnaður er mánaðarlegur kostnaður sem heimili greiðir vegna búsetu í íbúðarhúsnæði. Hjá heimilum í eigin húsnæði teljast til húsnæðiskostnaðar eftirfarandi liðir: vextir og verðbætur af húsnæðislánum (greiðslur á höfuðstól eru ekki meðtaldar, eins og í skilgreiningu Eurostat), hússjóðir og framkvæmdasjóðir húsfélaga, húseigenda- og brunatrygging, reglubundið og nauðsynlegt viðhald og viðgerðir á húsnæðinu, hiti, rafmagn og fasteignagjöld, þ.e. fasteignaskattur, vatnsgjald, fráveitugjald, sorphirðu- og sorpeyðingargjöld og lóðarleiga. Hjá heimilum í leiguhúsnæði teljast til húsnæðiskostnaðar húsaleiga, hiti og rafmagn. Ekki er tekið tillit til húsnæðis- og vaxtabóta við útreikning á húsnæðiskostnaði en slíkar greiðslur eru þó meðtaldar í ráðstöfunartekjum heimilisins. Við útreikning á byrði húsnæðiskostnaðar eru húsnæðis- og vaxtabætur dregnar frá bæði húsnæðiskostnaði og ráðstöfunartekjum.

Íþyngjandi húsnæðiskostnaður, hlutfall húsnæðiskostnaðar af ráðstöfunartekjum og eigið mat á byrði húsnæðiskostnaðar eru metin fyrir heimilið í heild og á niðurstaðan því við um alla heimilismenn. Miðgildi hlutfalls húsnæðiskostnaðar af ráðstöfunartekjum er það hlutfall sem helmingur einstaklinga er yfir og helmingur undir.

Tekjufimmtungar, eða fimmtungabil, greina tekjudreifingu. Einstaklingum er skipt í fimm jafnstóra hópa (20% í hverjum) eftir ráðstöfunartekjum á neyslueiningu, frá þeim tekjulægstu til þeirra tekjuhæstu. Fyrsti fimmtungur er sá tekjulægsti og fimmti fimmtungur er sá tekjuhæsti. Allir sem búa á sama heimili tilheyra sama tekjufimmtungi, því allir sem búa á sama heimili hafa sömu ráðstöfunartekjur á neyslueiningu.

Spurningunni um mat á byrði húsnæðiskostnaðar svarar sá sem lendir í úrtakinu fyrir hönd heimilisins. Spurt er hvort kostnaður við rekstur húsnæðisins, þar með taldar afborganir húsnæðislána, leiga, tryggingar, fasteignagjöld, viðhald og viðgerðir, sé þung, nokkur eða engin fjárhagsleg byrði. Hlutfallið er reiknað af einstaklingum á heimilum þar sem spurningunni var svarað.

Heimili einstæðra foreldra eru heimili þar sem einn fullorðinn býr með einu eða fleiri börnum á framfæri. Í heimilisgerðum er með börnum átt við börn á framfæri. Börn á framfæri eru öll börn yngri en 18 ára og einstaklingar 18–24 ára sem búa hjá foreldri og eru ekki starfandi, til dæmis vegna náms eða atvinnuleysis. Einstaklingar 18–24 ára sem eru starfandi teljast fullorðnir, eins og í skilgreiningu Eurostat, hagstofu Evrópusambandsins.

Ráðstöfunartekjur heimilis eru samanlagðar heildartekjur allra heimilismanna, að meðtöldum félagslegum greiðslum og að frádregnum sköttum og lögbundnum iðgjöldum. Samkvæmt skilgreiningu Eurostat telst hagnaður af sölu hlutabréfa og verðbréfa ekki til ráðstöfunartekna í þessari rannsókn. Aðrar fjármagnstekjur, svo sem vaxtatekjur og arður af hlutabréfum, teljast hins vegar til ráðstöfunartekna. Ráðstöfunartekjur á neyslueiningu eru ráðstöfunartekjur heimilis að teknu tilliti til heimilisstærðar. Heimilisstærð er mæld í neyslueiningum samkvæmt jafngildiskvarða OECD (e. modified OECD equivalence scale).


Um tölurnar
Niðurstöðurnar byggja á lífskjararannsókn Hagstofunnar. Rannsóknin er hluti af EU-SILC, samræmdri lífskjararannsókn Eurostat, hagstofu Evrópusambandsins. Tilgangurinn er að afla og miðla greinargóðum og samanburðarhæfum upplýsingum um tekjur og lífskjör almennings.

Úrtak lífskjararannsóknarinnar er einfalt slembiúrtak einstaklinga, og þar með heimilið sem þeir tilheyra, sem dregið er úr mannfjöldagrunni Hagstofunnar 1. janúar ár hvert. Í úrtaksrammanum eru allir íslenskir og erlendir ríkisborgarar, 16 ára og eldri, sem metnir eru í fastri búsetu á landinu. Sá sem lendir í úrtakinu veitir upplýsingar um sínar eigin aðstæður, aðstæður annarra heimilismanna og um heimilið. Upplýsingar um tekjur eru fengnar úr skattframtölum og öðrum stjórnsýslugögnum og miðast þær við árið á undan. Niðurstöður ársins 2026 byggjast þannig á tekjum ársins 2025.

Undanfarin ár hefur Hagstofan unnið að umbótum í vinnslu talna úr lífskjararannsókninni. Tölur áranna 2021–2023 hafa verið endurskoðaðar með nýjum vogum og endurbættri vinnslu tekna og húsnæðiskostnaðar. Það leiðir til þess að brot er í tímaröðinni á milli áranna 2020 og 2021. Nánar er fjallað um endurskoðunina í Hagtíðindum, „Greinargerð um endurskoðun lífskjararannsóknar Hagstofu Íslands 2021–2026“, sem komu út 20. nóvember 2026.

Við túlkun á niðurstöðum ber að hafa í huga að um úrtaksrannsókn er að ræða og því er gert ráð fyrir óvissu. Með því að hafa öryggisbil til hliðsjónar er hægt að leggja mat á hversu nákvæmlega úrtaksgildið segir til um hið raunverulega gildi í þýðinu. Öryggisbilin má finna í samsvarandi töflum á vef Hagstofunnar. Þegar fjallað er um mun á milli mælinga þá er það til marks um tölfræðilega marktækan mun. Þegar munurinn er tölfræðilega ómarktækur er ekki fjallað um mun.

Birtingin er hluti af verkefninu Félagsvísar sem Hagstofa Íslands vinnur í samstarfi við félags- og húsnæðismálaráðuneytið.

Greinargerð um endurskoðun lífskjararannsóknar Hagstofu Íslands 2021-2026 - Hagtíðindi

Lýsigögn

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 5281100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.