FRÉTT MANNFJÖLDI 20. MAÍ 2016

Árið 2015 var meðalævilengd karla 81 ár og meðalævilengd kvenna 83,6 ár á Íslandi.

Meðalævilengd sýnir hve mörg æviár einstaklingur á að meðaltali ólifuð við fæðingu, ef miðað er við aldursbundna dánartíðni mannfjöldans. Aldursbundin dánartíðni hefur farið lækkandi á undanförnum áratugum og má því vænta þess að fólk lifi að jafnaði lengur en reiknuð meðalævilengd segir til um.

Frá árinu 1985 hafa karlar bætt við sig rúmlega sex árum og konur rúmlega fjórum árum í meðalævilengd (sjá myndina hér að neðan).

Sé horft á tíu ára tímabil, 2005–2014, var meðalævi karla á Íslandi 80,2 ár og í Sviss 80 ár og skipuðu þeir fyrsta og annað sætið meðal Evrópulanda. Fast á hæla þeim komu karlar frá Svíþjóð og Liechtenstein (79,5 ár), Ítalíu (79,4), Noregi og Spáni (78,9 ár). Styst er meðalævilengd evrópskra karla í Moldavíu (65,6), Úkraínu (64) og Rússlandi (61,6).

Á sama tíu ára tímabili, 2005–2014, var meðalævi kvenna í Frakklandi og á Spáni 85,1 ár og skipuðu þær fyrsta sætið í Evrópu. Næstar í röðinni voru konur frá Sviss (84,7), Ítalíu (84,6) og Liechtenstein (84,1) og því næst Íslandi (83,7 ár). Meðalævilengd kvenna er styst í Úkraínu (74,8), Rússlandi (74) og Moldavíu (73,6 ár).

Ungbarnadauði lægstur á Íslandi í Evrópu
Árið 2015 létust 2.178 einstaklingar sem búsettir voru á Íslandi, 1.064 karlar og 1.114 konur. Dánartíðni var 6,6 látnir á hverja 1.000 íbúa og ungbarnadauði var 1,9 barn af hverjum 1.000 lifandi fæddum árið 2015.

Á tíu ára tímabili, 20052014, var meðalungbarnadauði á Íslandi 1,8 af 1.000 lifandi fæddum. Hvergi í Evrópu var ungbarnadauði jafn lágur og hér. Meðalungbarnadauði var 2,5 í Svíþjóð og Finnlandi, 2,7 í Noregi og Slóveníu. Tíðastur var ungbarnadauði í Tyrklandi, 15,3 af hverjum 1.000 lifandi fæddum.

Skýringar
Ungbarnadauði er alþjóðleg stöðluð vísitala á dánartíðni barna á fyrsta aldursári. Hún er reiknuð með því að deila fjölda látinna á fyrsta aldursári með fjölda lifandi fæddra í árgangi og margfalda niðurstöðuna með 1.000.

Við samanburð á tölum um ævilengd og ungbarnadauða í Evrópu er rétt að geta þess að íslensku tölurnar fyrir 20052014 byggjast á útreikningum Eurostat.

Talnaefni

 

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1030 , netfang mannfjoldi@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.