FRÉTT MANNFJÖLDI 09. MAÍ 2017

Árið 2016 var meðalævilengd karla 80,7 ár og meðalævilengd kvenna 83,7 ár á Íslandi.

Meðalævilengd sýnir hve mörg æviár einstaklingur á að meðaltali ólifuð við fæðingu, ef miðað er við aldursbundna dánartíðni mannfjöldans. Aldursbundin dánartíðni hefur farið lækkandi á undanförnum áratugum og má því vænta þess að fólk lifi að jafnaði lengur en reiknuð meðalævilengd segir til um.

Frá árinu 1986 hafa karlar bætt við sig rúmlega sex árum og konur rúmlega fjórum árum í meðalævilengd (sjá mynd 1).


Sé horft á meðaltal tíu ára, 2006-2015, var meðalævi karla á Íslandi 80,4 og í Sviss 80,2 ár og skipuðu þeir fyrsta og annað sætið meðal Evrópulanda. Þeim var fylgt eftir af körlum í Liechtenstein (79,9 ár), Svíþjóð (79,7) og Ítalíu (79,6), á Spáni og í Noregi (79,2 ár). Styst er meðalævilengd evrópskra karla í Moldavíu (65,6), Úkraínu (64,3) og Rússlandi (62,5).

Á sama tíu ára tímabili, 2006-2015, var meðalævi kvenna á Spáni og í Frakklandi 85,3 ár og skipuðu þær fyrsta sætið í Evrópu. Þeim er fylgt eftir af konum í Sviss (84,9), Ítalíu (84,7), Liechtenstein (84,1) og á Íslandi (83,8). Meðalævilengd kvenna er styst í Úkraínu (75), Rússlandi (74,6) og Moldavíu (73,6).

Ungbarnadauði í Evrópu lægstur á Íslandi
Árið 2016 létust 2.309 einstaklingar sem búsettir voru á Íslandi, 1.197 karlar og 1.112 konur. Dánartíðni var 6,9 látnir á hverja 1.000 íbúa og ungbarnadauði var 0,7 barn af hverjum 1.000 lifandi fæddum árið 2016.


 

Á tíu ára tímabili, 2006-2015, var meðal ungbarnadauði á Íslandi 1,8 af 1.000 lifandi fæddum. Hvergi í Evrópu var ungbarnadauði jafn lágur og hér. Meðal ungbarnadauði var 2,0 í San Marino og Andorra, 2,4 í Finnlandi, 2,5 í Slóveníu og Svíþjóð. Tíðastur var ungbarnadauði í Tyrklandi, 13,8 af hverjum 1.000 lifandi fæddum.


Skýringar
Ungbarnadauði er alþjóðleg stöðluð vísitala á dánartíðni barna á fyrsta aldursári. Hún er reiknuð með því að deila fjölda látinna á fyrsta aldursári með fjölda lifandi fæddra í árgangi og margfalda niðurstöðuna með 1.000.

Við samanburð á tölum um ævilengd og ungbarnadauði í Evrópu er rétt að geta þess að tölurnar fyrir 2006-2015 byggja á útreikningum Eurostat.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1030 , netfang mannfjoldi@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.