FRÉTT MANNFJÖLDI 13. OKTÓBER 2004

Á þriðja ársfjórðungi 2004 voru skráðar 20.274 breytingar á lögheimili í þjóðskrá. Þar af fluttu 9.898 innan sama sveitarfélags, 6.712 milli sveitarfélaga, 1.685 til landsins og 1.979 frá því. Brottfluttir Íslendingar voru 367 fleiri en aðfluttir en aðfluttir erlendir ríkisborgarar 17 fleiri en brottfluttir. Flestir erlendir ríkisborgarar voru frá Portúgal (91).
       Á þessu þriggja mánaða tímabili fluttu fleiri frá höfuðborgarsvæðinu en til þess (88). Aðeins tvö landsvæði voru með fleira aðkomufólk en brottflutta; Austurland (123) og Suðurland (14). Á Austurlandi var einkum um að ræða flutninga frá útlöndum; þar voru aðfluttir umfram brottflutta í flutningum milli landa 135. Aftur á móti voru brottfluttir heldur fleiri en aðfluttir í innanlandsflutningum til Austfjarða (-12).

Talnaefni  (Sjá: Búferlaflutningar eftir ársfjórðungum)

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.