FRÉTT MANNFJÖLDI 25. SEPTEMBER 2009

Hagstofa Íslands hefur nú birt dánarmein fyrir árið 2008. Gögnin byggjast á dánarvottorðum allra einstaklinga sem létust á árinu 2008 og áttu lögheimili á Íslandi við andlát.

Á árinu 2008 létust alls 1.987 einstaklingar, 1.005 konur og 982 karlar. Það hafa ekki orðið teljandi breytingar varðandi dánartíðni eftir helstu flokkum dánarmeina frá fyrra ári. Vegna þess hve íslenska þjóðin er fámenn geta þó tilviljanasveiflur milli ára verið nokkrar og ber því að taka samanburði um dánarmein milli einstakra ára varlega.

Helstu dánarmein þjóðarinnar eru nú sem fyrr sjúkdómar í blóðrásarkerfi og þá aðallega hjarta- og heilaæðasjúkdómar. Á árinu 2008 létust 706 af sjúkdómum í blóðrásarkerfi, þar af 375 úr blóðþurrðarhjartasjúkdómum, 154 konur og 221 karl. Alls létust 147 úr heilaæðasjúkdómum, 85 konur og 62 karlar.

Krabbamein eru næst stærsti flokkur dánarmeina. Á árinu 2008 létust 559 af völdum illkynja æxla eða krabbameina, 282 konur og 277 karlar. Af þeim  létust 134 úr lungnakrabbameini, 72 konur og 62 karlar. Þá létust 54 vegna illkynja æxlis í eitil- og blóðmyndandi vef, 23 konur og 31 karl. Auk þess létust 46 konur úr illkynja æxli í brjósti og 54 karlar úr illkynja æxli í blöðruhálskirtli. Aðrar tegundir illkynja æxla voru fátíðari.

Þriðji stærsti flokkur dánarmeina eru sjúkdómar í öndunarfærum en úr þeim dóu árið 2008 184 einstaklingar, þar af 80 einstaklingar úr langvinnum neðri öndunarfærasjúkdómum, 39 konur og 41 karl.

Dauðsföll vegna ytri orsaka er fjórði stærsti flokkurinn. Á árinu 2008 létust 125 af völdum ytri orsaka, 47 konur og 78 karlar. Af þeim voru dauðsföll sem tengdust óhöppum almennt alls 63 og í þeim hópi voru 22 konur og 41 karl. Alls létust 16 manns í umferðarslysum. Sjálfsvíg voru 38 á árinu og féllu 11 konur og 27 karlar fyrir eigin hendi. Það er svipuð tíðni og undanfarin ár.

Árið 2008 var skráð 131 ótímabært dauðsfall á Íslandi. Ótímabær dauðsföll eru andlát vegna tiltekinna dánarorsaka sem hefði mátt komast hjá með viðeigandi meðferð eða forvörnum.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.