FRÉTT MANNFJÖLDI 20. MARS 2007

Árið 2006 fæddust 4.415 börn hér á landi, 2.258 drengir og 2.157 stúlkur. Þetta eru fleiri fæðingar en árið 2005 en þá fæddust hér 4.280 börn. Algengasti mælikvarði á frjósemi er fjöldi lifandi fæddra barna á ævi hverrar konu. Árið 2006 mældist frjósemin 2,07 börn á ævi hverrar konu samanborið við 2,05 börn ári fyrr. Undanfarin áratug hefur frjósemi verið nokkuð stöðug hér á landi, lægst varð hún 1,9.

Í allflestum löndum Evrópu er frjósemi umtalsvert lægri en á Íslandi og verður fólksfjölgun þar einkum vegna streymis aðkomufólks. Samkvæmt tölum frá Hagstofu Evrópusambandsins er einungis eitt Evrópuland með meiri frjósemi en Ísland, þ.e. Tyrkland en þar var frjósemi 2,2.

Þótt alls staðar hafi dregið úr frjósemi hefur lækkunin verið misjafnlega ör eftir löndum. Á 8. og 9. áratug síðustu aldar var lækkun frjósemi örust í löndum kaþólikka í sunnanverðri Evrópu. Árið 1970 var frjósemi á Ítalíu 2,4 og á Spáni 2,9. Við lok 9. áratugarins var frjósemi í þessum löndum lægri en annars staðar í Evrópu (um 1,3). Nú mælist frjósemi aftur á móti minnst í ríkjum Austur-Evrópu. Í flestum þessara ríkja var frjósemi nálægt tveimur um 1990 en í kjölfar breytinga á stjórnarfari í ráðstjórnarríkjunum og öðrum ríkjum Austur-Evrópu lækkaði frjósemi ört í þessum ríkjum. Í nær öllum löndum Austur-Evrópu er frjósemi nú á bilinu 1,2-1,3.

Athygli vekur að samanborið við önnur Evrópulönd er frjósemi á Norðurlöndum há. Í Danmörku og Svíþjóð hefur lítil sem engin breyting orðið á frjósemi síðan 1970 en þá var frjósemi þar með því minnsta í Evrópu. Nú er frjósemi á Norðurlöndum utan Íslands 1,8. Hér á landi sem og annars staðar á Norðurlöndum hefur lækkun frjósemi á síðasta áratug verið mun hægari en víðast hvar annars staðar í Evrópu.

Hvort sem litið er til Íslands eða annarra landa Evrópu hefur orðið mikil breyting á frjósemi undanfarin 150 ár. Fæðingartíðni lækkaði í flestum löndum á síðustu áratugum 19. aldar. Lækkun var nokkuð jöfn fram á 4. áratug 20. aldar. Á árum heimskreppunnar varð vart hröðunar í því ferli í öllum löndum Evrópu.

Á Íslandi var lækkun frjósemi talsvert minni en víða annar staðar. Mynd 2 sýnir t.a.m. að hér var frjósemi 3,6 árið 1930 samanborið við 2,2 í Danmörku og 2 í Svíþjóð. Hér varð frjósemin minnst árið 1939 (2,7). Í Danmörku féll frjósemi á kreppuárunum niður í 2 ári og í Svíþjóð féll frjósemin niður í 1,7 börn um miðbik fjórða áratugarins.

Víðast hvar í Evrópu hækkaði frjósemi á árunum eftir seinni heimstyrjöldina. Hérlendis hækkaði frjósemi á stríðsárunum og á eftirstríðsárunum var hækkun frjósemi meiri hér en í flestum löndum Vestur-Evrópu. Á 20. öldinni varð frjósemi hér á landi mest undir lok 6. áratugarins en þá voru lifandi fædd börn á ævi hverrar konu um 4,2. Frjósemi minnkaði mjög ört á 7. áratugnum og féll niður fyrir 3 um 1970 og varð lægri en 2 um tveggja ára skeið um miðbik 9. áratugarins. Eftir það hækkaði frjósemi á Íslandi tímabundið en lækkaði aftur í upphafi 10. áratugarins. Sem fyrr segir hefur frjósemin verið fremur stöðug undanfarinn áratug, um 2 börn á ævi hverrar konu.

Lækkuð frjósemi hefur haldist í hendur við hækkaðan meðalaldur mæðra. Á sjöunda og áttunda áratug 20. aldar var meðalaldur frumbyrja tæplega 22 ár. Eftir það hækkaði meðalaldur frumbyrja ört, var 23,3 árið 1986, 25 ár tíu árum síðar en er nú 26,4 ár (sbr. mynd 3). Sífellt fátíðara verður að konur eigi börn áður en þær ná 25 ára aldri.

Fram undir 1980 var algengasti barneignaraldurinn 20–24 ár en lækkun fæðingartíðni er mest áberandi í þessum aldurshóp kvenna (mynd 4). Unglingamæðrum hefur einnig fækkað jafnt og þétt á þessu tímabili. Samanborðið við nágrannalöndin var fæðingartíðni hér á landi lengi vel afar há meðal kvenna undir tvítugu. Árin 1961-1965 var hún yfir 83,9 af 1.000 í aldurshópnum 15–19 ára en er nú aðeins 13,6 af 1.000. Nú er algengasti barneignaraldurinn 25–29 ára en í þeim aldurshópi hefur fæðingartíðnin haldist stöðug undangengin 30 ár. Í aldurshópunum 30–34 ára og 35–39 ára lækkaði fæðingartíðni á milli 1960 og 1980. Undanfarinn aldarfjórðung hefur frjósemi kvenna í þessum aldurshópum hækkað talsvert (mynd 5).



Á Íslandi fæðast fleiri börn utan hjónabands en í nokkru öðru Evrópuríki. Aðeins rúmlega þriðjungur barna á Íslandi fæðist innan vébanda hjónabands (34,4%). Þetta hlutfall hefur lækkað lítils háttar frá því í upphafi 10. áratugarins, úr 43,6% 1991. Hlutfall þeirra barna sem fæðast innan óvígðrar sambúðar foreldra hefur aftur á móti haldist stöðugt og er nú 51,6%. Börnum sem fæðast utan skráðrar sambúðar hefur fjölgað hlutfallslega, þau voru um 10,2% allra barna sem fæddust á árabilinu 1991-1995 en eru nú 14,1%.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.