FRÉTT MANNFJÖLDI 09. APRÍL 2021

Fjöldi lifandi fæddra barna á Íslandi árið 2020 var 4.512 sem er fjölgun frá árinu 2019 þegar 4.452 börn fæddust. Alls fæddust 2.385 drengir og 2.127 stúlkur en það jafngildir 1.121 drengjum á móti hverjum 1.000 stúlkum.

Helsti mælikvarði á frjósemi er fjöldi lifandi fæddra barna á ævi hverrar konu. Yfirleitt er miðað við að frjósemi þurfi að vera um 2,1 barn til að viðhalda mannfjölda til lengri tíma litið. Árið 2020 var frjósemi íslenskra kvenna 1,72 börn á ævi hverrar konu og dróst hún örlítið saman frá árinu 2019 en þá var frjósemi 1,75.

Aldursbundin fæðingartíðni mest á meðal 30-34 ára
Frá árinu 1932 hefur aldursbundin fæðingartíðni alltaf verið hæst í aldurshópunum 20-24 ára og 25-29 ára en árið 2019 varð sú breyting að fæðingartíðnin reyndist hæst innan aldurshópsins 30-34 ára. Það sama á við um árið 2020 en þá fæddust 113,1 börn á hverjar 1.000 konur á aldursbilinu 30-34 ára en 108,6 á aldursbilinu 25-29 ára. Fæðingartíðni mæðra undir tvítugu var í fyrra 4,7 börn á hverjar 1.000 konur. Það er afar lágt í samanburði við tímabilið 1961-1965 þegar hún fór hæst en þá fæddust 84 börn á hverjar 1.000 konur undir tvítugu.

Meðalaldur mæðra hefur hækkað jafnt og þétt síðustu áratugi og eignast konur nú sitt fyrsta barn að jafnaði síðar á ævinni en áður. Frá byrjun sjöunda áratugarins og fram yfir 1980 var meðalaldur frumbyrja undir 22 árum en eftir miðjan níunda áratuginn hefur meðalaldur farið hækkandi og var 28,6 ár í fyrra.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1030 , netfang mannfjoldi@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.