FRÉTT MANNFJÖLDI 10. JÚNÍ 2009

Samkvæmt bráðabirgðatölum um lögskilnaði og sambúðarslit 2008 skildu 549 hjón að lögum og 634 pör slitu sambúð. Af þeim 549 lögskilnuðum sem urðu á árinu þurfti að úrskurða um forsjá barna undir 18 ára aldri hjá 358 fjölskyldum. Hjá 401 fjölskyldu í sambúðarslitum þurfti að úrskurða um forsjá. Alls þurfti að úrskurða um forsjá 1.172 barna úr skilnuðum og sambúðarslitum árið 2008.

Frá árinu 2002 hefur verið algengast að foreldrar fari sameiginlega með forsjá barna sinna eftir skilnað en það varð fyrst mögulegt árið 1992. Fram að því var algengast að móðir færi ein með forsjána. Árið 2008 var forsjá barna úr skilnuðum þannig að 497 börn nutu sameiginlegrar forsjár foreldra sinna, 105 börn nutu einungis forsjár móður en sex börn einungis forsjár föður. Fjögur af hverjum fimm börnum voru þannig í sameiginlegri forsjá foreldra árið 2008 eða 81,1%.

 

Sameiginleg forsjá hefur verið talsvert algengari eftir sambúðarslit en lögskilnaði. Þegar árið 1997 varð algengast að foreldrar færu saman með forsjá barna sinna. Árið 2008 er engin undantekning, en þá völdu foreldrar sameiginlega forsjá í 90,5% tilvika. Alls voru 47 börn í forsjá móður einvörðungu (8,4%), en sex börn í forsjá föður (1,1%).

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.